Heilsustefna: Heilsa er allra hagur

Heilbrigð sál í hraustum líkama

18.11.2008

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti í dag heilsustefnu sína á fundi þar sem voru saman komnir flestir þeir sem taka þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd.

Heilbrigðisráðherra sagði þegar hann kynnti heilsustefnuna, að hún væri liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna. Sagði ráðherra það brýnt að skapa þjóðfélag þar sem fólk ætti þess auðveldlega kost að taka heilsusamlegar ákvarðanir, einkum með geðrækt, næringu og hreyfingu í huga.

Samfara kynningunni sem var á heilsustefnunni í dag skuldbundu fjölmargir aðilar sig, með undirritun sérstakrar yfirlýsingar, að taka virkan þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd..Félagssamtök, sveitarfélög, áhugahópar og fleiri rituðu undir yfirlýsinguna á fundinum í dag. Það hefur enda verið lögð á það rík áhersla við undirbúning og útfærslu heilsustefnunnar, að stefna saman fjölmörgum aðilum til að ná breiðri samstöðu um markmið og leiðir.

 

Heilbrigðisráðherra lagði áherslu á mikilvægt framlag þriðja geirans til almannaheilla í þessu sambandi. Hann sagði þriðja geirann samanstanda af ýmsum frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum, sem tilheyrðu hvorki einkageiranum, þar sem fyrirtæki eru rekin með hagnað að leiðarljósi, né opinberum rekstri. Innan þriðja geirans störfuðu fjölmörg samtök og félög sem sinntu afar mikilvægum verkefnum á sviði lýðheilsu- og heilbrigðismála. Markmið margra þeirra er að efla forvarnir eða að draga úr vanda einstaklinga vegna tímabundins eða varanlegs sjúkleika eða fötlunar. Sagði heilbrigðisráðherra að afar mikilvægt væri að sameina alla þá sem sinna forvörnum til að hrind í framkvæmd virkri heilsustefnu. – „Góð heilsa er mikilvæg undirstaða lífsgæða. Með samstilltu átaki getum við ekki aðeins bætt heilsufar þjóðarinnar heldur einnig orðið öðrum þjóðum fyrirmynd”, sagði heilbrigðisráðherra þegar hann kynnti stefnuna.

Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út fyrsta hluta Heilsustefnu heilbrigðisráðherra, Heilsustefna: Heilsa er allra hagur, þar sem eru áherslur úr aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra til kynningar í nóvember 2008.

Heilsustefnunni er ætlað að koma til móts við stefnu ríkisstjórnar Íslands um að auka áherslu á forvarnir og heilsueflingu á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum landsmanna. Heilsustefnan nær til ársloka 2011 og er þar lögð sérstök áhersla á hreyfingu, næringu og geðrækt, með það að markmiði að skapa samfélagslegar forsendur sem stuðla að bættri heilsu allra landsmanna. Í fyrsta hluta heilsustefnunnar eru sett fram markmið og aðgerðaáætlun sem beinast að heilsueflingu landsmanna skipt í fimm markhópa: Allir landsmenn, Börn á leikskólaaldri, Börn á grunnskólaaldri, Ungmenni á framhaldsskólaaldri og Fullorðnir.

Published on June 10, 2009 at 12:49 pm  Leave a Comment  

The URI to TrackBack this entry is: http://lidsmennjerico.wordpress.com/heilsustefna-heilsa-er-allra-hagur-2/trackback/

RSS feed for comments on this post.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.