Vinanet, spjall fyrir alla

Vinanet, spjall fyrir alla – http://vinanet.is/

Spjallið opnar formlega 1. febrúar

Hvað er vinanet?

Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem af einhverjum ástæðum hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.

Hlutverk sjálfboðaliða er að halda utan um spjallið og sjá til þess að notendur spjalli saman á jákvæðum nótum ásamt því að ýta undir að allir taki virkan þátt – bæði í spjallinu og í mánaðarlegum hittingum utan netheima. Sjálfboðaliðar verkefnisins hafa setið grunnnámskeið Vinanets og fengið þjálfun í viðtalstækni.

Vinanet verður opið alla sunnudaga og þriðjudaga milli kl. 18:00-21:00 á slóðinni www.vinanet.is. Ungt fólk á aldrinum 16-25 er hvatt til þess að skoða síðuna, skrá sig og taka þátt í spjallinu.

Nýr notandi

Til að geta tekið þátt í spjallinu og skoðað vini á netinu þarft þú að vera innskráður notandi. Þú þarft að skrá nafnið þitt, kennitöluna þína og netfangið þitt. Kennitalan og netfang þitt kemur hvergi fram á síðunni og Rauði krossinn mun ekki gefa upplýsingar um notendur til þriðja aðila. Það er mjög mikilvægt að notendur gefi upp virkt netfang því upplýsingar um síðuna eru sendar á það. Hver notendaumsókn er skoðuð sérstaklega og hafir þú fengið höfnun er lag að breyta umsókn þinni í samræmi við athugasemdir vefstjóra og senda aftur.

Vinir á netinu

Þú getur breytt þínum upplýsingum hvenær sem er – það er stuttur texti um þig, áhugamál, aldur og fleira. Ráðlegt er að notendur gefi ekki upp persónulegar upplýsingar á netinu. Mælt er með að notendur nýti hittinga Vinanets til að skiptast á persónulegum upplýsingum svo sem símanúmerum og/eða tölvunetföng ef vilji er fyrir því.

Reglur

- Aðgát skal höfð í nærveru sálar
- Síðan er ætluð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára
- Síðan er ekki fyrir fólk í makaleit
- Brottvísunarsök ef fólk virðir ekki þessar reglur og hagar sér óviðeigandi eða ósiðlega

Skráning á spjall
innskráning á spjall
Vinir á netinu
Vinir á netinu
Tenglar

Hittingar

Einelti með nýjum miðlum

Umboðsmaður barna

Einelti með nýjum miðlum

Hvað er til ráða?

 

Einelti hefur margvíslegar birtingarmyndir:

 

* Munnlegt ofbeldi – Uppnefni, stríðni eða niðurlægjandi athugasemdir. Þeir sem beita ofbeldinu hvíslast t.d. á um fórnarlambið, flissa og hlæja.

* Félagslegt ofbeldi – Barnið er skilið útundan í leik, því er ekki boðið að taka þátt í samkomum með bekkjarfélögunum eins og t.d. afmælisveislum. Barnið þarf að þola svipbrigði, augnagotur, þögn eða algert afskiptaleysi.

* Efnislegt ofbeldi – Eigum fórnarlambsins er stolið, t.d. skólabókum, pennaveski, skólatösku, nesti eða íþróttafatnaði eða þessir hlutir eru eyðilagðir.

* Andlegt ofbeldi – Barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu, s.s. girt er niður um barnið, það látið eyðileggja eigur annarra, jafnvel skólans. Barnið fær endurtekið neikvæðar athugasemdir og hótanir, ýmist í daglegum samskiptum eða í gegnum netið eða GSM –síma.

* Líkamlegt ofbeldi – Gengið er í skrokk á barninu, það barið, klórað, hárreitt og sparkað er í það og því hrint.

 

Einelti með nýjum miðlum

Nokkuð hefur borið á því að börn og unglingar noti Netið (t.d. bloggsíður og MSN) og GSM –síma til að leggja fórnarlömb sín í einelti. Niðrandi ummæli, hótanir og móðganir með þessum miðlum ná enn nær fórnarlambinu því með þessu móti fær það ekki einu sinni frið á heimili sínu.

 

Þó að sumum börnum finnist ólíklegt að fullorðið fólk lesi nokkurn tíma skrif þeirra á Netinu er mikilvægt að ræða þessi mál þannig að öllum sé ljóst að það sem fer á Netið eru opinber gögn sem allir hafa aðgang að; foreldrar, ömmur, afar, kennarar o.fl. Einnig þarf að brýna fyrir börnum að efni og myndir sem sett er á Netið getur hver sem er skoðað og tekið afrit af og geymt eða sent áfram, jafnvel löngu seinna. Svo virðist sem börn og ungmenni átti sig ekki alltaf á þeim skaða og sárindum sem þau geta valdið með því að birta eitthvað ósæmilegt um annan einstakling eða hafa í hótunum við annað fólk á Netinu eða með SMS –skilaboðum. Því er mikilvægt að allir átti sig á því að við njótum tjáningarfrelsis en við erum jafnframt ábyrg orða okkar. Réttur okkar til að tjá okkur takmarkast af rétti annarra til að njóta friðhelgi einkalífs.

 

Niðrandi ummæli og hótanir á Netinu eða með SMS tengjast oft eineltismálum. Ef bæði gerandi og þolandi eru grunnskólanemendur er skólinn (skólarnir) góður vettvangur til að fá ráðleggingar varðandi næstu skref. Skólarnir geta tekið á málinu ef eineltið fer fram innan skólans eða ef niðrandi eða neikvæð ummæli um nemendur eru send úr tölvum skólans eða frá netfangi sem skólinn hefur úthlutað nemendum sínum. Þá er tekið á málinu og farið eftir eineltisáætlun viðkomandi skóla. Ef alvarlegt einelti og hótanir eiga sér stað á Netinu skal hafa samband við lögreglu. Félagsmiðstöðvarnar og félagsþjónustan geta líka komið að þessum málum.

 

Í XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er fjallað um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þar segir m.a.:

 

233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

233. gr. b. Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum.

234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.

235. gr. Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári.

236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.

Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

237. gr. Ef maður bregður manni brigslum án nokkurs tilefnis, þá varðar það sektum, þótt hann segi satt.

 

Lögreglan eða sýslumannsembættið á þeim stað þar sem barnið býr, eftir því sem við á, veitir upplýsingar um farveg málsins, telji forsjáraðili að brotið hafi verið gegn framangreindum ákvæðum. Forsenda þess að lögreglan taki á málinu er að forsjáraðilar fórnarlambsins kæri ummælin. Á www.logreglan.is er að finna helstu upplýsingar um embættin í landinu. Ef barn hefur haft í hótunum eða skrifað alvarleg niðrandi ummæli um annað barn á Netið eða sent þau með SMS–skilaboðum er oft talin ástæða til þess að kalla gerandann (sé vitað hver hann er) ásamt foreldrum í viðtal hjá lögreglu til að gera þeim grein fyrir alvarleika málsins. Barnaverndarnefnd fær alltaf upplýsingar ef barn er grunað um refsivert athæfi.

 

Landssamtökin Heimili og skóli starfrækja SAFT–verkefnið svokallaða en meginmarkmið þess er að hvetja til ábyrgrar og öruggrar netnotkunar barna og unglinga. SAFT stendur fyrir samfélag, fjölskylda og tækni. Verkefnið er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga og er hluti af aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Menntamálaráðuneytið hefur falið Heimili og skóla – landssamtökum foreldra að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins.

 

Hvað er til ráða?

Einelti kemur öllum við. Þegar upp koma eineltismál eru til ýmsar leiðir til að leita sér aðstoðar. Þolendur eineltis þarfnast ekki einungis hjálpar, heldur einnig gerendurnir. Eftirfarandi aðilar veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf um einelti.

 

Félagsþjónusta sveitarfélaganna

Á vegum sveitarfélaganna er veitt ýmis konar félagsleg ráðgjöf (fjölskylduráðgjöf). Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins. Með því að smella á viðkomandi sveitarfélag er hægt að komast inn á heimasíðu þess.

Þjónustumiðstöðvarnar í Reykjavík. Þar er veitt ýmiss konar félagsleg ráðgjöf. Nánar á www.reykjavik.is.

Olweusarverkefnið gegn einelti

Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla og með stuðningi Kennaraháskóla Íslands. Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins á Íslandi er Þorlákur H. Helgason. Hægt er að hafa samband við Þorlák í síma 894–2098 eða á netfangið thorlakur@khi.is. Þorlákur veitir ráðgjöf þeim sem til hans leita vegna eineltismála í grunnskólum.

Heimili og skóli

Landssamtökin Heimili og skóli aðstoða þá sem hafa áhyggjur af einhverju varðandi skólagöngu og uppeldi barna. Heimasíðan er www.heimiliogskoli.is.

*

Hjálparsími Rauða krossins 1717

Þessi sími er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu. Það kostar ekkert að hringja.

Kirkjan

Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál, enda eru prestar bundnir trúnaði.

Skólaskrifstofa sveitarfélagsins

Á skólaskrifstofu sveitarfélagsins (Menntasviði í Reykjavík) starfa sérfræðingar sem veita skólunum og nemendum þeirra faglegan stuðning.

Starfsfólk skólans

Ef um er að ræða einelti í skólanum er nauðsynlegt að umsjónarkennari viti af því til að hægt sé að bregðast við því. Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.

Starfsfólk félagsmiðstöðvar

Ef eineltið á sér stað í félagsmiðstöð er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið á að hafa þekkingu og reynslu til að taka á málinu og leiðbeina.

Starfsfólk félags eða stofnunar

Ef eineltið á sér stað í íþrótta- eða tómstundastarfi er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið eða a.m.k. forstöðufólk ætti að geta tekið á eineltinu og leiðbeint um viðeigandi aðgerðir.

Tótalráðgjöfin

Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.

VR – Vellíðan í vinnu.

Vellíðan í vinnu

Þú átt rétt á því að þér líði vel í vinnu. Gott starfsumhverfi stuðlar að aukinni vellíðan á vinnustað og góðum starfsanda. Í þessum kafla er fjallað um margt það sem hefur áhrif á vellíðan þína í vinnunni og hvernig bregðast skuli viði komi upp alvarleg vandamál.

Hér er m.a fjallað um einelti á vinnustað en það er skilgreint sem tíðar og neikvæðar athafnir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn vinnufélaga sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir þeim verður mikilli vanlíðan og grafa undan sjálfstrausti hans.

Hér er líka fjallað um  kynferðislega áreitni en hún felst m.a. í óæskilegru líkamlegri snertingu, óvelkomnum aðdróttunum, bröndurum, athugasemdum um útlit eða grófum munnsöfnuði.

Einelti

Einelti á vinnustað er skilgreint sem tíðar og neikvæðar athafnir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn vinnufélaga sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir þeim verður mikilli vanlíðan og grafa undan sjálfstrausti hans.

Að gera lífið óbærilegt

Það eru margar aðferðir sem gerendur nota til að gera þolendum lífið óbærilegt; rógburður t.d. slúður, illt umtal og sögusagnir sem beitt er til að grafa undan mannorði þolanda, rangar ásakanir um frammistöðu í starfi, stöðug og óréttlát gagnrýni, niðurlæging í viðurvist annarra, særandi ummæli og nafnaköll, beinar munnlegar eða líkamlegar hótanir, aukið vinnuálag, niðrandi skírskotun til aldurs, kyns eða litarháttar, persónulegar móðganir, háð, árásargirni, stöðugar breytingar á vinnuaðferðum eða vinnutíma, skemmdarverk, tafir í vinnu, útilokun frá veislum, fundum eða ferðum og jafnvel kynferðisleg áreitni.

Allir geta orðið fyrir því að vera lagðir í einelti. Einelti á vinnustað einkennist af röð atvika í stað eins ákveðins atburðar. Eineltið getur því staðið yfir í margar vikur eða mánuði áður en sá sem fyrir því verður áttar sig á því að hann er orðinn fórnarlamb eineltis.

Sá sem stendur fyrir einelti getur verið samstarfsmaður, undir- eða yfirmaður. Það má finna nokkra sameiginlega þætti í fari gerenda eineltis, s.s. skort á sjálfstrausti, óöryggi, félagslega vanhæfni eða vanhæfni til stjórnunar. Til að fela þessa vanhæfni grípur gerandi oft til þess ráðs að varpa henni yfir á vinnufélaga sinn, t.d. með því að leyna hann upplýsingum, gagnrýna hann stöðugt eða bera röngum sökum.

Hvers vegna?

Einelti getur átt sér stað á hvaða vinnustað sem er, einnig þar sem vinnuaðstæður er taldar vera til fyrirmyndar. Þó eru ýmsir þættir sem geta stuðlað að einelti á vinnustað, t.d. þegar samkeppni meðal starfsmanna er mikil, ótti er við uppsagnir, öfund ríkir meðal starfsmanna, stöðuhækkanir eru á kostnað annarra, skortur er á þjálfun starfsmanna, lítil virðing er borin fyrir öðrum og skoðunum þeirra, vinnuaðstæður eru slæmar eða henta illa, breytingar eru gerðar á skipulagi, vinnuálag er of mikið, markmiðin of háleit, stjórnun ómarkviss eða í formi valdbeitingar og upplýsingaflæði lélegt.

Reglugerð
um aðgerðir gegn einelti á vinnustað


I. KAFLI
Gildissvið og orðskýringar.
1. gr.
Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um aðgerðir gegn einelti á vinnustað sem lög nr. 46/1980, um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, gilda um.

2. gr.
Markmið.

Markmiðið með þessari reglugerð er að innan vinnustaða verði stuðlað að forvörnum og
aðgerðum gegn einelti á vinnustöðum.

3. gr
Orðskýringar.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

a. Einelti: Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun
sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og
valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða
líkamlegt ofbeldi fellur hér undir. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða
hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli stjórnanda og starfsmanns eða
tveggja eða fleiri starfsmanna enda leiði slíkur skoðanaágreiningur eða
hagsmunaárekstur ekki til þeirrar háttsemi sem lýst er hér að framan.

b. Vinnuverndarfulltrúi á vinnustað: Fulltrúi í öryggisnefnd, sá sem hefur verið kosinn
öryggistrúnaðarmaður eða skipaður öryggisvörður skv. II. kafla laga nr. 46/1980, um
aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum. Enn fremur er átt við aðra aðila sem
starfa að vinnuvernd innan vinnustaðar.

II. KAFLI

Skyldur atvinnurekanda.
4. gr.

Almennt ákvæði.
Atvinnurekandi skal skipuleggja vinnu þannig að dregið sé úr hæ ttu á að þæ r aðstæ ður
skapist í vinnuumhverfi sem leitt geti til eineltis eða annarrar ótilhlýðilegrar háttsemi.
Atvinnurekandi skal gera starfsfólki það ljóst að einelti og önnur ótilhlýðileg háttsemi er
óheimil á vinnustað. Atvinnurekanda ber skylda til að láta slíka háttsemi á vinnustað ekki
viðgangast og skal hann leitast við að koma í veg fyrir ótilhlýðilega háttsemi sem hann fæ r
vitneskju um, í samráði við vinnuverndarfulltrúa á vinnustaðnum þegar við á.

5. gr.
Áhættumat og forvarnir.

Atvinnurekandi ber ábyrgð á að gerð sé áæ tlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem
felur í sér almennt áhæ ttumat og áæ tlun um forvarnir, sbr. XI. kafla laga nr. 46/1980, um
aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum. Við gerð áhæ ttumatsins skal meðal annars
meta aðstæ ður í vinnuumhverfinu sem geta leitt til eineltis. Grípa skal til viðeigandi aðgerða í
samræmi við niðurstöður áhæ ttumatsins til að draga úr eða koma í veg fyrir að slíkar aðstæ ður
komi upp á vinnustaðnum. Atvinnurekandinn skal hafa samráð við vinnuverndarfulltrúa við
gerð áhæ ttumats og áæ tlun um forvarnir.

III. KAFLA
Viðbrögð við upplýsingum um einelti.

6. gr.
Tilkynningaskylda starfsmanns.

Starfsmaður sem hefur orðið fyrir eða hefur vitneskju um einelti á vinnustað skal
upplýsa atvinnurekanda eða vinnuverndarfulltrúa vinnustaðarins um það. Skal starfsmaðurinn
vera reiðubúinn að skýra mál sitt nánar ef ástæ ða þykir til.

7. gr.
Viðbrögð atvinnurekanda.

Atvinnurekandi skal bregðast við eins fljótt og kostur er komi fram ábending eða
kvörtun um einelti á vinnustað. Hið sama gildir þegar rökstuddur grunur er um að einelti eða
önnur ótilhlýðileg háttsemi í garð starfsmanna eða stjórnenda eigi sér stað innan
vinnustaðarins. Meta skal aðstæ ður í samvinnu við vinnuverndarfulltrúa vinnustaðarins,
utanaðkomandi ráðgjafa, ef með þarf, og aðra er málið varðar. Atvinnurekandi skal grípa til
viðeigandi ráðstafana og fylgja því eftir að einelti endurtaki sig ekki á vinnustaðnum.

IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.

8. gr.
Eftirlit.

Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar, sbr. 82. gr. laga
nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.

9. gr.
Viðurlög.

Brot á ákvæ ðum reglugerðar þessarar geta varðað viðurlögum skv. 99. gr. laga nr.
46/1980, um aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.

10. gr.
Kæruheimild.

Um kæ ruheimildir á grundvelli þessarar reglugerðar fer skv. 98. gr. laga nr. 46/1980, um
aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum.

11. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 37. gr., e-lið 38. gr., 65. gr., 65. gr. a og 66.
gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhæ tti og öryggi á vinnustöðum, með síðari
breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 2. desember 2004


Hvert skal leita.

Leitaðu ráða hjá:

  • Heilsugæslustöðvum
  • Bráðamóttöku geðdeilda
  • Sérfræðingum um geðheilsu, t.d. geðlækni, sálfræðingi, eða geðhjúkrunarfræðingi
  • Námsráðgjafa, presti eða félagsráðgjafa
  • Fjölskyldumiðstöðinni; þar er hægt að fá viðtöl fyrir foreldra með börn í vanda.
  • Ekki má hér gleyma því sem oft er mikilvægast, það er að ræða um vanlíðan sína við nána ættingja og vini.

Hér fyrir neðan eru heimilisföng og símanúmer ýmissa sem geta veitt þér hjálp og ráðgjöf:
Heilsugæslustöðvar í hverju heilsugæsluumdæmi
Sjá símaskrá

Læknavaktin
Smáratorgi 1, 200 Kópavogur
Sími: 1770

Félagsþjónusta í einstökum sveitarfélögum
Sjá símaskrá
Bakvakt Barnaverndar sveitafélaga:
Hringið í síma 112

Hjálparsími Rauða kross Íslands
Sími: 1717. Smellið á mynd.

Bráðaþjónusta geðdeilda:
Landspítali - háskólasjúkrahús
við Hringbraut, 101 Reykjavík
Sími: 543 1000

Fjórðungssjúkrahús Akureyrar
Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri
Sími: 463 0100

Geðhjálp
Túngötu 7, 101 Reykjavík
Sími: 570 1700

Vinalínan
Sími: 561 6464, grænt númer: 800 6464

Fjölskyldumiðstöðin
Heilsuverndarstöðinni
Barónsstíg 47, 101
Sími: 511 1599

Landlæknisembættið: Þjóð gegn þunglyndi
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnes
Sími: 510 1900, fax: 510 1919
Tölvupóstur: postur@landlaeknir.is
Vefsíður: www.landlaeknir.is
www. thunglyndi.landlaeknir.is

Sjá einnig: www.umhuga.is

Öflugt sjálfstraust

Þetta námskeið er fyrir alla foreldra sem vilja styrkja sig í að verða sterkar fyrirmyndir fyrir börnin sín, bæta eigin sjálfsímynd og um leið vellíðan.

Höfundar námskeiðsins eru Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og Sæmundur Hafsteinsson sálfræðingur. Eru þeir annálaðir fyrir sín vel heppnuðu námskeið sem þeir hafa verið með um allt land s.s. árangursrík liðsheild, árangursrík samskipti, álag, áföll og streita og öflugt sjálfstraust.
Þeir flytja námsefnið á myndbandi og hafa þjálfað starfsfólk Foreldrahússins til að hafa umsjón með námskeiðunum.
Námskeiðsgögnin eru vönduð vinnubók ásamt geisladiski sem höfundarnir hafa lesið inná. Þetta námskeiðsform gefur foreldrum tækifæri á að halda áfram þjálfuninni þegar heim er komið.

Kenndar eru aðferðir til að efla sjálfstraust og hvað einkennir gott eða lélegt sjálfstraust. Fjallað verður um áhrif hugarfars, viðhorfs og hugsunar á hegðun og líðan. Einnig verður fjallað um leiðir til að byggja sig upp og taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu.
Vinnuferli: Horft er á hvern kafla fyrir sig á myndbandinu. Þau verkefni sem unnin eru eru ýmist unnin sjálfstætt eða í vinnuhópum. Niðurstöður úr sameiginlegum verkefnum kynntar.

Boðið er uppá að skipta námskeiðinu í tvennt sem verða þá 3 eða 6 tímar í senn. Verð fyrir manninn er kr 6.000,- og innifalið í því er vönduð vinnubók og geisladiskur. Verð fyrir hjón er kr 9.500,- og innifalið í því er 2 vinnubækur og tveir geisladiskar.

Innihaldslýsing

1.kafli: Hvað er sjálfstraust ?
Einstaklingur með gott sjálfstraust hefur trú á sjálfum sér og eigin getu. Hann býr yfir nægjanlegu öryggi til að mynda heilbrigð tengsl og treysta öðrum.
Sjálfstraust er færni sem við getum tileinkað okkur og eflt með þjálfun. Sjálfstraust byggir á þeim tilfinningum og hugmyndum sem við höfum um okkur sjálf.

Sá sem hefur gott sjálfstraust nær árangri. Einstaklingurinn hefur unnið með sjálfan sig og lagt sitt að mörkum.

2. kafli: Sjálfstraust og uppeldi
Gætum vandlega að því hvað við segjum í návist barnanna, þau eru næm og muna lengi. Forðumst óeðlilegan samanburð við önnur börn. Eyðum ekki orku í óþarfa nöldur og aðfinnslur! Notum frekar tímann til að leiðbeina, hvetja og hrósa fyrir það sem vel er gert. Góður agi í bernsku skilar sér sem góður sjálfsagi síðar meir. Góður agi byggist á virðingu.

3. kafli: Hvað einkennir öflugt sjálfstraust
Öflugu sjálfstrausti fylgir sannfæringarkraftur og jákvæð útgeislun. Einstaklingar með gott sjálfstraust eru þægilegir í umgengni, virða aðra og kunna að hvetja til dáða. Þeir kunna að setja sér raunhæf og ögrandi markmið, þá þyrstir í árangur og meiri þorska. Þeir gera hlutina, eru dugmiklir og láta verkin tala.

4. kafli: Að byggja upp sjálfstraust
Ég ber sjálf(ur) ábyrgð á því hvernig mér gengur í lífi og starfi. Ég leita stöðugt leiða til að axla þá ábyrgð og styrkja trú mína á árangur. Sannur árangur byggist ekki á eigingirni. Ég gæti þess að fylgjast með framförum hjá sjálfum mér, ég get stjórnað eigin getu betur en annarra. Ég vil læra að njóta betur árangurs og rækta þannig með mér tilfinningu fyrir því að ég eigi velgengni skilið.

5. kafli: Efasemdapokinn
• Að granda eigin efasemdum.
• Við getum sjálf stjórnað eigin tilfinningum og hugarfari.
• Ég leita lausna – ekki hindrana.
• Ég beiti markvissri hugþjálfun og tileinka mér árangursríka hugsun.

Samantekt
Ég set mér skýr og jákvæð markmið – hugleiði vel leiðir að markinu.
Allt er mögulegt, fátt er skemmtilegra en að ná árangri í lífinu.
Ég tek ábyrgð á eigin lífi.

Umsögn
Námskeiðið var á allan hátt ákaflega gagnlegt og gefandi. Ég fór á það með
opnum huga og eftir á að hyggja held ég að það sé einmitt dýrmætasta
veganestið, þ.e. að vera tilbúinn að tjá sig og hlusta um leið á frásagnir
annarra í svipuðum sporum.
Námskeiðið skilaði mér miklu og vakti upp áleitnar spurningar um
aðferðafræði í uppeldi. Það dýrmætasta af öllu fannst mér þó hversu
opinskáir foreldrar voru þegar kom að því að ræða ýmis vandamál sem þeir
voru að glíma við.
Ég tek ofan fyrir þeim konum sem til okkar komu – ósköp venjulegir foreldrar
eins og við öll – og fannst þær standa sig með mikilli prýði. Ef hægt er að
finna á námskeiðinu galla, er það helst að viðfangsefnið sé of umfangsmikið
fyrir aðeins tvö kvöld. En ég hvet alla foreldra sem eiga þess kost, að sækja
námskeiðið. Þeim tíma er vel varið.
Sigurður Sverrisson, Akranesi
——————
Aðrar umsagnir um námskeiðið
“Uppbygging námskeiðsins var nýstárleg og forvitnileg.”


“Fyrirlestur á myndbandi hefur sína kosti
en kemur ekki í stað fyrirlesara á staðnum.”

“Námskeiðið var gagnlegt og fræðandi.”

“Það ber vott um mikið sjálfstraust að hefja námskeið á því að segja
vandalausum frá sínum vandamálum.”

“Takk fyrir mig – þetta var frábært.”

“Ég hef lært mikið og ætla, get og skal reyna að fara
eftir því sem ég hef lært.”

“Námskeiðið jók mér skilning á mannlegum samskiptum… og á sjálfum mér.”

“Tíminn fyrir hópvinnuna þyrfti að vera rýmri, en verkefnin eru góð.”

Það eru til lausnir ef fólki líður illa (stress, depression)

Álag, streita og kvíði.

Þegar fólk verður fyrir áföllum þarf það að muna að nauðsynlegt er að ræða málin við sína nánustu og fá hjá þeim þann stuðning sem hægt er. Flestum nægir slíkur stuðningur en fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki rætt við sína nánustu eru önnur úrræði í boði. Ef fólk finnur fyrir kvíða, depurð eða einkennum þunglyndis eða þekkir einhvern sem það hefur áhyggjur af eru margvíslegar leiðir til að leita aðstoðar.

Það eru til lausnir og hjálpin er nær en þig kann að gruna, þar á meðal eru:

Heilsugæslan; heimilislæknar og hjúkrunarfræðingar.

1717 hjálparsími Rauða Krossins.

Ráðgjöf á vegum geðdeildar Landspítala í Heilsuverndarstöð verður opnuð á næstu 1–2 sólarhringum.

Ráðgjafarstöð heimilanna.

Göngudeildir geðdeilda Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

Göngudeildin Von við SÁÁ (í erfiðum aðstæðum aukast líkur á falli).

Ráðgjafarstöð á vegum félagsmálaráðuneytis (verið að setja upp).

Aðstoð við fólk í vanda á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga

Fjölskyldumiðstöð á Háleitisbraut.

Fjölskylduþjónusta kirkjunnar.

Vaktþjónusta heilsugæslunnar.

Sérfræðistofur geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.

Langvarandi álag, streita og kvíði geta valdið þunglyndi ef ekkert er að gert, þ.e. ef fólk hlúir ekki að sér og sínum nánustu eða leitar þeirrar aðstoðar sem í boði er. Munum að þegar rætt er um þunglyndi þá verið að ræða sjúklegt ástand sem hefur staðið samfellt í a.m.k. 14 daga og getur þróast í alvarlegan sjúkdóm. Við þurfum þó fyrir alla muni að gæta þess að líta ekki á áhyggjur af aðsteðjandi efnahagsvanda eins og um sjúkdóm sé að ræða.


Látið áfengi í friði
Það er einnig ástæða til á að hvetja fólk sem hefur þungar áhyggjur til að láta áfengi eða önnur vímuefni í friði vegna þess að neysla þeirra losar um hömlur og getur gert ástandið mun verra. Áfengisneysla getur til að mynda aukið á samskiptaerfiðleika, komið af stað pirringi, valdið reiði og vakið bæði vonleysi og neikvæðar hugsanir um tilgangsleysi.


Að lokum skal bent á meiri fræðslu um þessi efni á vefjunum

http://www.thunglyndi.landlaeknir.is/ og

http://www.umhuga.is/, en þar er listi yfir enn fleiri staði sem hægt er að leita til

(http://www.umhuga.is/I-vanda-Hvert-leita-eg). Sjá ennfremur:

Hugum að velferð barna.


Vellíðan í vinnu – Tekið af heimasíðu VR

Þú átt rétt á því að þér líði vel í vinnu. Gott starfsumhverfi stuðlar að aukinni vellíðan á vinnustað og góðum starfsanda. Í þessum kafla er fjallað um margt það sem hefur áhrif á vellíðan þína í vinnunni og hvernig bregðast skuli viði komi upp alvarleg vandamál.

Hér er m.a fjallað um einelti á vinnustað en það er skilgreint sem tíðar og neikvæðar athafnir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn vinnufélaga sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir þeim verður mikilli vanlíðan og grafa undan sjálfstrausti hans. 

Hér er líka fjallað um  kynferðislega áreitni en hún felst m.a. í óæskilegru líkamlegri snertingu, óvelkomnum aðdróttunum, bröndurum, athugasemdum um útlit eða grófum munnsöfnuði.

Einelti
Einelti á vinnustað er skilgreint sem tíðar og neikvæðar athafnir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn vinnufélaga sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir þeim verður mikilli vanlíðan og grafa undan sjálfstrausti hans.

Að gera lífið óbærilegt

Það eru margar aðferðir sem gerendur nota til að gera þolendum lífið óbærilegt; rógburður t.d. slúður, illt umtal og sögusagnir sem beitt er til að grafa undan mannorði þolanda, rangar ásakanir um frammistöðu í starfi, stöðug og óréttlát gagnrýni, niðurlæging í viðurvist annarra, særandi ummæli og nafnaköll, beinar munnlegar eða líkamlegar hótanir, aukið vinnuálag, niðrandi skírskotun til aldurs, kyns eða litarháttar, persónulegar móðganir, háð, árásargirni, stöðugar breytingar á vinnuaðferðum eða vinnutíma, skemmdarverk, tafir í vinnu, útilokun frá veislum, fundum eða ferðum og jafnvel kynferðisleg áreitni.

Allir geta orðið fyrir því að vera lagðir í einelti. Einelti á vinnustað einkennist af röð atvika í stað eins ákveðins atburðar. Eineltið getur því staðið yfir í margar vikur eða mánuði áður en sá sem fyrir því verður áttar sig á því að hann er orðinn fórnarlamb eineltis.

Sá sem stendur fyrir einelti getur verið samstarfsmaður, undir- eða yfirmaður. Það má finna nokkra sameiginlega þætti í fari gerenda eineltis, s.s. skort á sjálfstrausti, óöryggi, félagslega vanhæfni eða vanhæfni til stjórnunar. Til að fela þessa vanhæfni grípur gerandi oft til þess ráðs að varpa henni yfir á vinnufélaga sinn, t.d. með því að leyna hann upplýsingum, gagnrýna hann stöðugt eða bera röngum sökum.

Hvers vegna?

Einelti getur átt sér stað á hvaða vinnustað sem er, einnig þar sem vinnuaðstæður er taldar vera til fyrirmyndar. Þó eru ýmsir þættir sem geta stuðlað að einelti á vinnustað, t.d. þegar samkeppni meðal starfsmanna er mikil, ótti er við uppsagnir, öfund ríkir meðal starfsmanna, stöðuhækkanir eru á kostnað annarra, skortur er á þjálfun starfsmanna, lítil virðing er borin fyrir öðrum og skoðunum þeirra, vinnuaðstæður eru slæmar eða henta illa, breytingar eru gerðar á skipulagi, vinnuálag er of mikið, markmiðin of háleit, stjórnun ómarkviss eða í formi valdbeitingar og upplýsingaflæði lélegt.

Hvað er til ráða?

Vinnuveitanda ber að tryggja starfsmönnum sínum gott starfsumhverfi, hvort sem er tæknilega eða félagslega. Vinnuveitandi á þannig að sjá til þess að einelti viðgangist ekki á vinnustaðnum. Bregðist hann ekki við með tilhlýðilegum hætti getur starfsmaður sem verður fyrir einelti átt bótarétt gagnvart vinnuveitanda sínum og gerandanum.

Hvað getur þú gert?

Ef þú ert þolandi eineltis eða ert vitni að því, skaltu grípa inn í með því að gagnrýna ákveðið þessa hegðun. Ef það dugar ekki skaltu skrá nákvæmlega það sem gerist hverju sinni og jafnframt kanna hvort aðrir vinnufélagar hafi orðið fyrir einelti af hendi sama aðila. Ef svo er, skaltu ræða við þá. Ræddu einnig við trúnaðarmann þinn á vinnustað, starfsmannastjóra eða yfirmann. Gerðu grein fyrir því að eineltið sé vandamál sem varði alla á vinnustaðnum.

Vinnuferli VR

Mundu að VR er innan seilingar og getur aðstoðað þig en hjá félaginu er starfandi teymi sem tekur á eineltis- og samskiptamálum. Félagið fylgir ákveðnu vinnuferli þegar upp koma mál er varða einelti af hálfu vinnufélaga. Félagsmaður kemur til viðtals, ef grunur leikur á að um einelti sé að ræða. Saga viðkomandi er skráð. Ráðgjafi og/eða eineltisteymi fer yfir sögu og metur máli. Komist aðilar að því að ekki sé um einelti að ræða, frekar samskiptamál lýkur máli á þessu stigi en telji aðilar að um einelti sé að ræða fer eftirfarandi ferli í gang:

 

  • Starfsmaður hvattur til að skrásetja dag og tíma eineltis.
  • Starfsmaður ræðir við vinnufélaga sína, hugsanleg vitni að atburðum og óskar eftir að þeir skrásetji aburði.
  • Samband haft við yfirmann og honum gerð grein fyrir alvarleika málsins. Óskað er eftir að hann tali við geranda/gerendur og boðið er uppá vinnuferlisreglur. VInnuveitanda er gerð grein fyrir bótaskyldu hans ef hann aðhefst ekkert í málinu. Aðvörunarbréf er sent ef óbreytt ástand varir.

 

Ef málið snýst um einelti af hálfu yfirmanns er sama ferli fylgt og lýst er hér að ofan nema hvað lokaferlið varðar en þá er haft samband við æðsta stjórnanda, t.d. stjórnarformann fyrirtækis.

Kynferðisleg áreitni
Kynferðisleg áreitni getur m.a. birst sem:

 

  • Óæskileg líkamleg snerting, viðkoma eða klapp
  • Óvelkomnar aðdróttanir, brandarar, athugasemdir um útlit og grófur munnsöfnuður
  • Tvíræð og niðurlægjandi tilboð
  • Klámmyndir á vinnustað
  • Krafa um kynferðislegt endurgjald
  • Líkamleg valdbeiting

 

Kynferðisleg áreitni getur leitt til:

 

  • Streitu og reiði
  • Þunglyndis
  • Svefnleysis og streitutengdra sjúkdómseinkenna, svo sem höfuðverks, húðvandamála, meltingartruflana o.fl. 

Hvað er til ráða?
Gerðu þeim sem áreitir þig ljóst, á ótvíræðan hátt, að þú sættir þig ekki við þessa framkomu. Hafðu hugfast að áreitnin er ekki þér að kenna og þú berð ekki ábyrgð á henni.

Ekki leyna ástandinu heldur skráðu nákvæmlega hjá þér hvað gerist hverju sinni ef mögulegt er og fáðu vitni til að skrá atferlið. Fylgstu með hvort einhverjar breytingar verða á verkefnum þínum og aðgættu hvort sá sem áreitir þig breytir afstöðu sinni til þín. Kannaðu hvort áreitnin hafi einhvern tilgang og þá hvern. Kannaðu einnig hvort einhver vinnufélagi þinna hefur orðið fyrir sams konar áreitni og ef svo er, ræddu þá við hann um málið.

Gerðu gerandann sýnilegan

Aflaðu þér stuðnings meðal annarra vinnufélaga sem einnig hafa orðið fyrir áreitni og/eða geta e.t.v. verið vitni. Gerðu yfirmanni þínum grein fyrir ástandinu, annaðhvort beint aða í gegnum þriðja aðila og ræddu áreitnina af hreinskilni við trúnaðarmann, starfsmannastjóra, stéttarfélagið eða leitaðu til skrifstofu jafnréttismála.

Ekki standa ein(n) í baráttunni – þá ertu dæmd(ur) til að tapa. Gerðu gerandann sýnilegan.

VR til aðstoðar

Hjá VR er starfandi þriggja manna teymi sem tekur á málum sem tengjast kynferðislegu áreitni og öðrum samskiptavandamálum. Hafðu samband við VR í síma                510 1700         og fáðu nánari upplýsingar og aðstoð.

Published in: on December 12, 2008 at 2:26 pm  Leave a Comment  

Til ykkar þolendur eineltis.

Elsku hjartans yndislega gullið mitt.
Mikið er ég fegin að þú lifðir eineltið af.
Sagan þín á eftir að hjálpa, af því að þú ert á lífi. Það skiptir öllu.
Það skiptir máli fyrir mig og allt fólkið sem hefur verið að setja sig í
samband við mig undanfarið.

Þú gerðir ekkert rangt, þetta var ekki þér að kenna. Þú varst fórnalamb.

Lofaður mér því að elska þig og meta þá persónu sem þú ert og vertu
góð við þig. Þú átt það skilið elsku ljósið mitt. Þú ert frábær eins og þú ert.

Þú ert vinur minn.
Kveðja Inga

Published in: on December 11, 2008 at 8:14 pm  Leave a Comment  

Vinnueftirlitið – Einelti.

Viðbrögð við einelti og annarri ótilhlýðilegri háttsemi á vinnustað
Reglugerð nr. 1000/2004 um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum hefur tekið gildi (sjá nánar). Ennfremur hefur verið gefinn út vinnumhverfisvísir til að meta félagslegan og andlegan aðbúnað á vinnustað og bæklingur er nefnist Einelti og kynferðisleg áreitni á vinnustöum – Forvarnir og viðbrögð.

 

Vinnueftirlitið hefur leiðbeinandi hlutverk og eftlitsskyldu í eineltismálum. Stofnuninni ber ennfremur að vinna að forvörnum t.d. með leiðbeiningum og fræðslu og sjá til þess að atvinnurekandi grípi til viðeigandi úrbóta (sjá nánar) á vandamálum í vinnuumhverfinu. Ákveðnar upplýsingar þurfa helst að liggja fyrir þegar kvartað er til Vinnueftirlitsins um einelti á vinnustað – sjá ennfremur eyðublað. Hægt er að senda eyðublaðið til Vinnueftirlitsins eða að hafa samband við einhverja af umdæmisskrifstofum Vinnueftirlitsins til að fá nánari upplýsingar og aðstoð við að leggja fram kvörtun.
 
 
 

 

Reglugerð nr. 1000/2004 – Aðgerðir gegn einelti á vinnustað
Vinnuverndarlögin, lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, voru endurskoðuð árið 2003, en þá kom inn ákvæði í V. kafla um framkvæmd vinnu, 38. gr. að félagsmálaráðherra ætti að setja nánari reglur, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlitsins, um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum. Reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum nr. 1000/2004 tók gildi 2. desember 2004. Alþjóðavinnumálastofnunin hefur vakið máls á vandamálum er tengjast einelti og öðru ofbeldi á vinnustöðum. Í félagsmálasáttmála Evrópu, 2. mgr. 26. gr., er kveðið á um rétt fólks til mannlegrar reisnar í starfi. Þar kemur fram að stuðla skuli að aukinni vitund og forvörnum gegn endurtekinni, ámælisverðri eða ótilhlýðilegri og móðgandi háttsemi sem beinist að einstökum starfsmönnum á vinnustað eða starfi þeirra. Litið hefur verið svo á að andlegt og félagslegt vinnuumhverfi falli undir markmið vinnuverndarlaganna. Með setningu reglugerðarinnar er verið að leggja áherslu á að innan hvers vinnustaðar verði stuðlað að forvörnum og aðgerðum gegn einelti.

 

Einelti er skilgreint, samkvæmt reglugerðinni, sem ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir.

 

Undir skilgreininguna fellur ekki skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli t.d. stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda leiði slíkur skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur ekki til þeirrar háttsemi sem lýst er hér að ofan.

 

Í reglugerðinni kemur m.a. fram að atvinnurekandi skal skipuleggja vinnu þannig að dregið sé úr hættu á að þær aðstæður skapist í vinnuumhverfi, sem leitt geti til eineltis eða annarrar ótilhlýðilegrar háttsemi. Orsakir eineltis geta verið margvíslegar en skipulag og framkvæmd vinnu getur átt stóran þátt í að skapa aðstæður þar sem einelti getur þróast. Atvinnurekandi skal gera starfsfólki það ljóst að einelti og önnur ótilhlýðileg háttsemi er óheimil á vinnustað og honum ber skylda til að láta ekki slíkt viðgangast á vinnustað. 

 

Vinnueftirlitið hefur gefið út ýmsa bæklinga um félagslega og andlega áhættuþætti í vinnuumhverfinu. Þar er meðal annars að finna bækling sem nefnist Einelti og kynferðisleg áreitni á vinnustað – forvarnir og viðbrögð og bækling/veggspjald – Er einelti á vinnustaðnum? Einnig hefur verið gefinn út vinnuumhverfisvísir sem er hægt er að nýta við að meta félagslegan og andlegan aðbúnað á vinnustað.

 

Mikilvægt er að starfsmaður, sem orðið hefur fyrir einelti á vinnustað eða hefur vitneskju um slíkt, upplýsi atvinnurekanda eða vinnuverndarfulltrúa vinnustaðarins um eineltið svo hægt sé að bregðast við eins fljótt og kostur er.

 

Hlutverk og viðbrögð Vinnueftirlitsins
Vinnueftirlitið hefur leiðbeinandi hlutverk og eftirlitsskyldu með að lögum og reglum á sviði vinnuverndar sé framfylgt. Viðbrögð Vinnueftirlitsins í eineltismálum beinast að því að vinnuumhverfið verði sem heilsusamlegast og öruggast til frambúðar. Vinnueftirlitið skal einnig sjá til þess að atvinnurekandi grípi til veiðeigandi úrbóta ef hann hefur ekki sinnt skyldum sínum á viðunandi hátt að mati stofnunarinnar. Vinnueftirlitið er hlutlaus aðili og tekur aldrei beinan þátt í úrlausn mála innan vinnustaðarins. Ekkert ákvæði í vinnuverndarlögunum heimilar Vinnueftirlitinu að taka ákvarðanir í málum einstakra starfsmanna, hvort sem kvörtunin lýtur að líkamlegri eða andlegri vanlíðan þeirra, heldur skulu ákvarðanir Vinnueftirlitsins beinast að aðstæðum á vinnustaðnum og ábyrgð atvinnurekandans. Vinnueftirlitið úrskurðar því ekki um hvort tiltekinn einstaklingur hafið orðið fyrir einelti eða ekki. Stofnunin tekur engu að síður við ábendingum um einelti eða annan vanbúnað á vinnustað frá starfsmönnum eða öðrum þeim er verður hans áskynja. Ef fram kemur kvörtun um einelti á vinnustað skal atvinnurekandi bregðast við eins fljótt og hægt er og leitast við að leysa málin innan vinnustaðarins með aðkomu öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða eða öryggisnefnda eftir atvikum. Einnig getur verið um að ræða aðkomu annarra vinnuverndarfulltrúa sem sérstaklega er falið að sinna félagslegum aðbúnaði á vinnustað.

 

Hlutverk Vinnueftirlitsins er að fylgjast með því að innan vinnustaðanna sjálfra séu skilyrði fyrir því að hægt sé að leysa öryggis- og heilbrigðisvandamál í samræmi við gildandi lög og reglur.

 

 Forsenda þess að Vinnueftirlitið komi að málum er:

 

  • að um endurtekna og viðvarandi háttsemi sé að ræða skv. 2. gr. reglugerðar um aðgerðir gegn einelti nr. 1000/2004. 
  • að ljóst sé að sá starfsmaður sem málið varðar sé enn starfandi á vinnustaðnum. 
  • að málið hafi verið tekið upp innan vinnustaðarins en viðunandi lausn hafi ekki náðst. 
  • að aðstæður séu slíkar að ekki er hægt að taka málið upp innan vinnustaðarins, t.d. þegar atvinnurekandi er meintur gerandi. 
  • að fyrir liggi skriflegt leyfi frá starfsmanninum eða umboðsmanni hans um að upplýsingar varðandi málið megi nota í samskiptum eftirlitsmanns við vinnustaðinn. 

Vinnueftirlitið kemur ekki að málum:

  • ef deilur snúast um kjaramál. 
  • ef um er að ræða deilur eða hagsmunaárekstra milli stjórnenda og starfsmanna eða tveggja einstaklinga nema þær séu viðvarandi eða endurtaki sig kerfisbundið, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1000/2004 um aðgerðir gegn einelti á vinnustað.

     

Ef starfsmaður, sem kvartar til Vinnueftirlitsins er hættur störfum eða hefur ákveðið að hætta, tekur stofnunin málið upp í almennu eftirliti undir félagslegum aðbúnaði. Það sama gildir ef starfsmaður óskar nafnleyndar, þ.e. þá er umræða um einelti á vinnustað tekin upp í almennu eftirliti undir félagslegum aðbúnaði og umrædd kvörtun ekki nefnd.

 

 Vinnueftirlitið fer fram á að ákveðnar upplýsingar liggi fyrir (sjá nánar) þegar kvartað er til stofnunarinnar um einelti á vinnustað. Ennfremur þarf að fylla út eyðublað (sjá staðlað eyðublað). Þegar umbeðnar upplýsingar liggja fyrir boðar eftirlitsmaður Vinnueftirlitsins til fundar á vinnustaðnum með atvinnurekanda, öryggisnefnd sé hún til staðar eða öryggisverði og öryggistrúnaðarmanni, félagslegum trúnaðarmanni eða öðrum tilnefndum fulltrúum, séu þeir til staðar. Möguleiki er að meintur þolandi taki einnig þátt í fundinum. Miðað er við að fundurinn verði innan 14 daga frá því að umbeðnar upplýsingar bárust.

 

Eftirlitsmaður Vinnueftirlitsins gefur fyrirmæli og ábendingar eftir fundinn sem geta t.d. falið í sér:

 

a. Fyrirmæli um áhættumat og áætlun um forvarnir varðandi félagslegan  aðbúnað á vinnustað.
b. Fyrirmæli um að gerð sé almenn viðbragðsáætlun vinnustaðarins gegn einelti.
c. Fyrirmæli um að gerðar séu ráðstafanir til að bregðast við þeim vanda sem upp er kominn á vinnustaðnum.
d. Fyrirmæli varðandi aðstoð eða úttekt utanaðkomandi ráðgjafa.

 

Samkvæmt 65. gr. vinnuverndarlaganna ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Áætlunin skal meðal annars fela í sér mat á áhættu, sbr. 65. gr. a lið, og áætlun um heilsuvernd, sbr. 66. gr.
 
Ef ekki er farið eftir ákvörðunum Vinnueftirlitsins á grundvelli vinnuverndarlaganna, nr.  46/1980, 87. gr. og reglna sem settar eru með stoð í þeim, getur stofnunin gripið til þvingunaraðgerða, t.d. til dagsekta, þar til farið verður að ákvörðun stofnunarinnar.

 

 

 

 

Published in: on December 11, 2008 at 3:42 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.