Vinanet, spjall fyrir alla

Vinanet, spjall fyrir alla – http://vinanet.is/

Spjallið opnar formlega 1. febrúar

Hvað er vinanet?

Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem af einhverjum ástæðum hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.

Hlutverk sjálfboðaliða er að halda utan um spjallið og sjá til þess að notendur spjalli saman á jákvæðum nótum ásamt því að ýta undir að allir taki virkan þátt – bæði í spjallinu og í mánaðarlegum hittingum utan netheima. Sjálfboðaliðar verkefnisins hafa setið grunnnámskeið Vinanets og fengið þjálfun í viðtalstækni.

Vinanet verður opið alla sunnudaga og þriðjudaga milli kl. 18:00-21:00 á slóðinni www.vinanet.is. Ungt fólk á aldrinum 16-25 er hvatt til þess að skoða síðuna, skrá sig og taka þátt í spjallinu.

Nýr notandi

Til að geta tekið þátt í spjallinu og skoðað vini á netinu þarft þú að vera innskráður notandi. Þú þarft að skrá nafnið þitt, kennitöluna þína og netfangið þitt. Kennitalan og netfang þitt kemur hvergi fram á síðunni og Rauði krossinn mun ekki gefa upplýsingar um notendur til þriðja aðila. Það er mjög mikilvægt að notendur gefi upp virkt netfang því upplýsingar um síðuna eru sendar á það. Hver notendaumsókn er skoðuð sérstaklega og hafir þú fengið höfnun er lag að breyta umsókn þinni í samræmi við athugasemdir vefstjóra og senda aftur.

Vinir á netinu

Þú getur breytt þínum upplýsingum hvenær sem er – það er stuttur texti um þig, áhugamál, aldur og fleira. Ráðlegt er að notendur gefi ekki upp persónulegar upplýsingar á netinu. Mælt er með að notendur nýti hittinga Vinanets til að skiptast á persónulegum upplýsingum svo sem símanúmerum og/eða tölvunetföng ef vilji er fyrir því.

Reglur

- Aðgát skal höfð í nærveru sálar
- Síðan er ætluð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára
- Síðan er ekki fyrir fólk í makaleit
- Brottvísunarsök ef fólk virðir ekki þessar reglur og hagar sér óviðeigandi eða ósiðlega

Skráning á spjall
innskráning á spjall
Vinir á netinu
Vinir á netinu
Tenglar

Hittingar

Orð dagsins

31.01.09

Sá sem viðurkennir mistök sín

og leitast við að leiðrétta þau

getur sagt með sanni að hann

sé vitrari í dag en í gær

-

30.01.09

Vingjarnleiki er uppspretta vináttu og þar sem

vináttan skýtur rótum mun kærleikurinn

senn blómstra

-

25.01.209

Vinur minn.

Þú væntir aldrei of mikils af mér.

Þú fagnar mér þegar vel þegar gengur vel,

en álasar mér ekki fyrir að mistakast.

Þú veitir mér alla þá hjálp sem þú mrgnar -

en meira skiptir þó að þú ert til staðar.

Wendy Jean Smith

-

24.01.2009

Elskaðu andartakið,

og orka sem í

andartakinu býr mun

slíta af þér alla fjötra.

Corita Kent

-

23.01.2009

Láttu góðsemina lýsa af andliti þínu,

í augum þínum og í hlýrri kveðju.

Handa börnum, handa fátækum,

handa öllum sem þjást og eru einir,

skaltu eiga glatt bros.

Veittu þeim ekki aðeins umhyggju

gefðu þeim líka hjarta þitt.

( Móðir Teresa 1910-1997 )

Published in: on January 23, 2009 at 3:07 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.