Þann 9. júní nk. kynna Mannréttindaskrifstofa Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytið niðurstöður könnunar á viðhorfum almennings til mismununar á Íslandi og ýta átaki gegn mismunun Fylgdu hjartanu, sameinumst í fjölbreytninni! formlega úr vör. Kynningin fer fram í Hringborðsstofu, Þjóðmenningarhúsi, kl. 14. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Félags- og tryggingamálaráðherra, Árni Páll Árnason, tekur til máls ásamt fulltrúum Mannréttindaskrifstofu Íslands og Capacent Gallup.
Skildi vera minnst á einelti? Ég ætla að mæta og kynna mér það.