Umboðsmaður barna
Einelti með nýjum miðlum
Hvað er til ráða?
Einelti hefur margvíslegar birtingarmyndir:
* Munnlegt ofbeldi – Uppnefni, stríðni eða niðurlægjandi athugasemdir. Þeir sem beita ofbeldinu hvíslast t.d. á um fórnarlambið, flissa og hlæja.
* Félagslegt ofbeldi – Barnið er skilið útundan í leik, því er ekki boðið að taka þátt í samkomum með bekkjarfélögunum eins og t.d. afmælisveislum. Barnið þarf að þola svipbrigði, augnagotur, þögn eða algert afskiptaleysi.
* Efnislegt ofbeldi – Eigum fórnarlambsins er stolið, t.d. skólabókum, pennaveski, skólatösku, nesti eða íþróttafatnaði eða þessir hlutir eru eyðilagðir.
* Andlegt ofbeldi – Barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu, s.s. girt er niður um barnið, það látið eyðileggja eigur annarra, jafnvel skólans. Barnið fær endurtekið neikvæðar athugasemdir og hótanir, ýmist í daglegum samskiptum eða í gegnum netið eða GSM –síma.
* Líkamlegt ofbeldi – Gengið er í skrokk á barninu, það barið, klórað, hárreitt og sparkað er í það og því hrint.
Einelti með nýjum miðlum
Nokkuð hefur borið á því að börn og unglingar noti Netið (t.d. bloggsíður og MSN) og GSM –síma til að leggja fórnarlömb sín í einelti. Niðrandi ummæli, hótanir og móðganir með þessum miðlum ná enn nær fórnarlambinu því með þessu móti fær það ekki einu sinni frið á heimili sínu.
Þó að sumum börnum finnist ólíklegt að fullorðið fólk lesi nokkurn tíma skrif þeirra á Netinu er mikilvægt að ræða þessi mál þannig að öllum sé ljóst að það sem fer á Netið eru opinber gögn sem allir hafa aðgang að; foreldrar, ömmur, afar, kennarar o.fl. Einnig þarf að brýna fyrir börnum að efni og myndir sem sett er á Netið getur hver sem er skoðað og tekið afrit af og geymt eða sent áfram, jafnvel löngu seinna. Svo virðist sem börn og ungmenni átti sig ekki alltaf á þeim skaða og sárindum sem þau geta valdið með því að birta eitthvað ósæmilegt um annan einstakling eða hafa í hótunum við annað fólk á Netinu eða með SMS –skilaboðum. Því er mikilvægt að allir átti sig á því að við njótum tjáningarfrelsis en við erum jafnframt ábyrg orða okkar. Réttur okkar til að tjá okkur takmarkast af rétti annarra til að njóta friðhelgi einkalífs.
Niðrandi ummæli og hótanir á Netinu eða með SMS tengjast oft eineltismálum. Ef bæði gerandi og þolandi eru grunnskólanemendur er skólinn (skólarnir) góður vettvangur til að fá ráðleggingar varðandi næstu skref. Skólarnir geta tekið á málinu ef eineltið fer fram innan skólans eða ef niðrandi eða neikvæð ummæli um nemendur eru send úr tölvum skólans eða frá netfangi sem skólinn hefur úthlutað nemendum sínum. Þá er tekið á málinu og farið eftir eineltisáætlun viðkomandi skóla. Ef alvarlegt einelti og hótanir eiga sér stað á Netinu skal hafa samband við lögreglu. Félagsmiðstöðvarnar og félagsþjónustan geta líka komið að þessum málum.
Í XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er fjallað um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þar segir m.a.:
233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
233. gr. b. Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum.
234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
235. gr. Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.
Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
237. gr. Ef maður bregður manni brigslum án nokkurs tilefnis, þá varðar það sektum, þótt hann segi satt.
Lögreglan eða sýslumannsembættið á þeim stað þar sem barnið býr, eftir því sem við á, veitir upplýsingar um farveg málsins, telji forsjáraðili að brotið hafi verið gegn framangreindum ákvæðum. Forsenda þess að lögreglan taki á málinu er að forsjáraðilar fórnarlambsins kæri ummælin. Á www.logreglan.is er að finna helstu upplýsingar um embættin í landinu. Ef barn hefur haft í hótunum eða skrifað alvarleg niðrandi ummæli um annað barn á Netið eða sent þau með SMS–skilaboðum er oft talin ástæða til þess að kalla gerandann (sé vitað hver hann er) ásamt foreldrum í viðtal hjá lögreglu til að gera þeim grein fyrir alvarleika málsins. Barnaverndarnefnd fær alltaf upplýsingar ef barn er grunað um refsivert athæfi.
Landssamtökin Heimili og skóli starfrækja SAFT–verkefnið svokallaða en meginmarkmið þess er að hvetja til ábyrgrar og öruggrar netnotkunar barna og unglinga. SAFT stendur fyrir samfélag, fjölskylda og tækni. Verkefnið er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga og er hluti af aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Menntamálaráðuneytið hefur falið Heimili og skóla – landssamtökum foreldra að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins.
Hvað er til ráða?
Einelti kemur öllum við. Þegar upp koma eineltismál eru til ýmsar leiðir til að leita sér aðstoðar. Þolendur eineltis þarfnast ekki einungis hjálpar, heldur einnig gerendurnir. Eftirfarandi aðilar veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf um einelti.
Félagsþjónusta sveitarfélaganna
Á vegum sveitarfélaganna er veitt ýmis konar félagsleg ráðgjöf (fjölskylduráðgjöf). Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins. Með því að smella á viðkomandi sveitarfélag er hægt að komast inn á heimasíðu þess.
Þjónustumiðstöðvarnar í Reykjavík. Þar er veitt ýmiss konar félagsleg ráðgjöf. Nánar á www.reykjavik.is.
Olweusarverkefnið gegn einelti
Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla og með stuðningi Kennaraháskóla Íslands. Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins á Íslandi er Þorlákur H. Helgason. Hægt er að hafa samband við Þorlák í síma 894–2098 eða á netfangið thorlakur@khi.is. Þorlákur veitir ráðgjöf þeim sem til hans leita vegna eineltismála í grunnskólum.
Heimili og skóli
Landssamtökin Heimili og skóli aðstoða þá sem hafa áhyggjur af einhverju varðandi skólagöngu og uppeldi barna. Heimasíðan er www.heimiliogskoli.is.
*
Hjálparsími Rauða krossins 1717
Þessi sími er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu. Það kostar ekkert að hringja.
Kirkjan
Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál, enda eru prestar bundnir trúnaði.
Skólaskrifstofa sveitarfélagsins
Á skólaskrifstofu sveitarfélagsins (Menntasviði í Reykjavík) starfa sérfræðingar sem veita skólunum og nemendum þeirra faglegan stuðning.
Starfsfólk skólans
Ef um er að ræða einelti í skólanum er nauðsynlegt að umsjónarkennari viti af því til að hægt sé að bregðast við því. Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.
Starfsfólk félagsmiðstöðvar
Ef eineltið á sér stað í félagsmiðstöð er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið á að hafa þekkingu og reynslu til að taka á málinu og leiðbeina.
Starfsfólk félags eða stofnunar
Ef eineltið á sér stað í íþrótta- eða tómstundastarfi er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið eða a.m.k. forstöðufólk ætti að geta tekið á eineltinu og leiðbeint um viðeigandi aðgerðir.
Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.