Öflugt sjálfstraust

Þetta námskeið er fyrir alla foreldra sem vilja styrkja sig í að verða sterkar fyrirmyndir fyrir börnin sín, bæta eigin sjálfsímynd og um leið vellíðan.

Höfundar námskeiðsins eru Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og Sæmundur Hafsteinsson sálfræðingur. Eru þeir annálaðir fyrir sín vel heppnuðu námskeið sem þeir hafa verið með um allt land s.s. árangursrík liðsheild, árangursrík samskipti, álag, áföll og streita og öflugt sjálfstraust.
Þeir flytja námsefnið á myndbandi og hafa þjálfað starfsfólk Foreldrahússins til að hafa umsjón með námskeiðunum.
Námskeiðsgögnin eru vönduð vinnubók ásamt geisladiski sem höfundarnir hafa lesið inná. Þetta námskeiðsform gefur foreldrum tækifæri á að halda áfram þjálfuninni þegar heim er komið.

Kenndar eru aðferðir til að efla sjálfstraust og hvað einkennir gott eða lélegt sjálfstraust. Fjallað verður um áhrif hugarfars, viðhorfs og hugsunar á hegðun og líðan. Einnig verður fjallað um leiðir til að byggja sig upp og taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu.
Vinnuferli: Horft er á hvern kafla fyrir sig á myndbandinu. Þau verkefni sem unnin eru eru ýmist unnin sjálfstætt eða í vinnuhópum. Niðurstöður úr sameiginlegum verkefnum kynntar.

Boðið er uppá að skipta námskeiðinu í tvennt sem verða þá 3 eða 6 tímar í senn. Verð fyrir manninn er kr 6.000,- og innifalið í því er vönduð vinnubók og geisladiskur. Verð fyrir hjón er kr 9.500,- og innifalið í því er 2 vinnubækur og tveir geisladiskar.

Innihaldslýsing

1.kafli: Hvað er sjálfstraust ?
Einstaklingur með gott sjálfstraust hefur trú á sjálfum sér og eigin getu. Hann býr yfir nægjanlegu öryggi til að mynda heilbrigð tengsl og treysta öðrum.
Sjálfstraust er færni sem við getum tileinkað okkur og eflt með þjálfun. Sjálfstraust byggir á þeim tilfinningum og hugmyndum sem við höfum um okkur sjálf.

Sá sem hefur gott sjálfstraust nær árangri. Einstaklingurinn hefur unnið með sjálfan sig og lagt sitt að mörkum.

2. kafli: Sjálfstraust og uppeldi
Gætum vandlega að því hvað við segjum í návist barnanna, þau eru næm og muna lengi. Forðumst óeðlilegan samanburð við önnur börn. Eyðum ekki orku í óþarfa nöldur og aðfinnslur! Notum frekar tímann til að leiðbeina, hvetja og hrósa fyrir það sem vel er gert. Góður agi í bernsku skilar sér sem góður sjálfsagi síðar meir. Góður agi byggist á virðingu.

3. kafli: Hvað einkennir öflugt sjálfstraust
Öflugu sjálfstrausti fylgir sannfæringarkraftur og jákvæð útgeislun. Einstaklingar með gott sjálfstraust eru þægilegir í umgengni, virða aðra og kunna að hvetja til dáða. Þeir kunna að setja sér raunhæf og ögrandi markmið, þá þyrstir í árangur og meiri þorska. Þeir gera hlutina, eru dugmiklir og láta verkin tala.

4. kafli: Að byggja upp sjálfstraust
Ég ber sjálf(ur) ábyrgð á því hvernig mér gengur í lífi og starfi. Ég leita stöðugt leiða til að axla þá ábyrgð og styrkja trú mína á árangur. Sannur árangur byggist ekki á eigingirni. Ég gæti þess að fylgjast með framförum hjá sjálfum mér, ég get stjórnað eigin getu betur en annarra. Ég vil læra að njóta betur árangurs og rækta þannig með mér tilfinningu fyrir því að ég eigi velgengni skilið.

5. kafli: Efasemdapokinn
• Að granda eigin efasemdum.
• Við getum sjálf stjórnað eigin tilfinningum og hugarfari.
• Ég leita lausna – ekki hindrana.
• Ég beiti markvissri hugþjálfun og tileinka mér árangursríka hugsun.

Samantekt
Ég set mér skýr og jákvæð markmið – hugleiði vel leiðir að markinu.
Allt er mögulegt, fátt er skemmtilegra en að ná árangri í lífinu.
Ég tek ábyrgð á eigin lífi.

Umsögn
Námskeiðið var á allan hátt ákaflega gagnlegt og gefandi. Ég fór á það með
opnum huga og eftir á að hyggja held ég að það sé einmitt dýrmætasta
veganestið, þ.e. að vera tilbúinn að tjá sig og hlusta um leið á frásagnir
annarra í svipuðum sporum.
Námskeiðið skilaði mér miklu og vakti upp áleitnar spurningar um
aðferðafræði í uppeldi. Það dýrmætasta af öllu fannst mér þó hversu
opinskáir foreldrar voru þegar kom að því að ræða ýmis vandamál sem þeir
voru að glíma við.
Ég tek ofan fyrir þeim konum sem til okkar komu – ósköp venjulegir foreldrar
eins og við öll – og fannst þær standa sig með mikilli prýði. Ef hægt er að
finna á námskeiðinu galla, er það helst að viðfangsefnið sé of umfangsmikið
fyrir aðeins tvö kvöld. En ég hvet alla foreldra sem eiga þess kost, að sækja
námskeiðið. Þeim tíma er vel varið.
Sigurður Sverrisson, Akranesi
——————
Aðrar umsagnir um námskeiðið
“Uppbygging námskeiðsins var nýstárleg og forvitnileg.”


“Fyrirlestur á myndbandi hefur sína kosti
en kemur ekki í stað fyrirlesara á staðnum.”

“Námskeiðið var gagnlegt og fræðandi.”

“Það ber vott um mikið sjálfstraust að hefja námskeið á því að segja
vandalausum frá sínum vandamálum.”

“Takk fyrir mig – þetta var frábært.”

“Ég hef lært mikið og ætla, get og skal reyna að fara
eftir því sem ég hef lært.”

“Námskeiðið jók mér skilning á mannlegum samskiptum… og á sjálfum mér.”

“Tíminn fyrir hópvinnuna þyrfti að vera rýmri, en verkefnin eru góð.”

SJÁLFSTYRKING námskeið fyrir börn og unglinga


SKRÁNINGAR Á NÁMSKEIÐ 2009:
Skráning sendist á jorunn@vimulaus.is
upplýsingar: nafn foreldris, sími og kennitala, nafn barns og bekkur


UM NÁMSKEIÐIÐ:

Sjálfstyrking unglinga fyrir 13 – 17 ára og Börnin okkar fyrir 10 -12 ára eru byggð upp á líkan hátt. Verkefnavinna og umræðuefni eru sniðin og löguð að hverjum aldurshópi fyrir sig. Tekið er mið af þroska og hæfni þátttakenda. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sig í jákvæðara ljósi og beini hugsunum sínum að sínum sterku hliðum og efli þær. Gott sjálfstraust og trú á eigin getu eru nauðsynlegir kostir til að verjast óæskilegum áhrifum frá samfélaginu.

Námskeiðið stendur yfir í tíu vikur
Foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum

Kennslan fer fram í Foreldrahúsinu. Allar nánari upplýsingar eru í símum 511-6161 eða 511-6160

MARKMIÐ
Byggja upp sjálfstraust
Byggja upp þekkingu á tilfinningum
Byggja upp félagsleg tengsl
Byggja upp samskiptahæfni
Byggja upp sjálfsþekkingu

VINNULÝSING
Sjálfstyrking
: Námskeiðinu er ætlað að efla sjálfstraust og félagslega færni barna/unglinga. Gerð eru tilfinningaverkefni og þátttakendum er kennt að skilgreina eigin tilfinningar. Þekking á eigin tilfinningum og líðan getur hjálpað til við að öðlast betra líf.

Víðsýni og skilningur á samfélaginu. Að vera fær um að setja sig í spor annarra án þess að dæma er mikilvægt. Að átta sig á hvað liggur að baki hegðunar annarra hverju sinni auðveldar viðkomandi að átta sig betur á skilaboðum frá umhverfinu.

Verkefnavinna er í skriflegu formi, unglingarnir fá heimaverkefni í samskiptum, þeir æfa sig heima eða í skólanum og segja síðan frá árangrinum á næsta fundi. Er þá sérstaklega átt við samskipti við annað fólk.

Listnám: Myndlist, tónlist, leikræn tjáning, sjálfstæð listsköpun og orðlist. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og framkvæmdargleði.

Án vímu: Að lifa sáttur og án vímugjafa er mikilvægur þáttur. Farið verður með þátttakendur t.d. á kaffihús. Þeim er kennt að setja eðlileg mörk. t.d. gagnvart vinum sínum. Einnig er þeim kennt að skilgreina hvað er óeðlilegt áreiti frá samfélaginu. Farið er yfir hvernig þeim gekk aðstanda með sér og hvernig þeim leið þegar vel tóks til.

Ræðukeppni: Hópnum er skipt upp í hópa, með eða móti, málefni og það rökrætt. Á eftir er svo farið yfir hvernig þeim leið að standa uppi í pontu, óttinn við að standa upp skilgreindur og hvað gekk vel. Rætt er um sjálfsöryggi og hvað það er, sem gefur okkur öryggi þegar við stöndum í pontunni.

Samskipti: Við hvern eru erfiðustu samskiptin? Unglingunum er hjálpað til að sjá báðar hliðar. Leir er notaður sem táknmynd um það þegar manni líður verst.

Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði listrænnar sköpunar og mannlegra samskipta, þeir aðstoða unglingana til að beita ímyndunarafli sínu og sköpunargáfu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu.

Unglingarnir fara með verkefni heim þar sem þau æfa sig í samskiptum, ráða bót á neikvæðum tilfinningum og hvernig þau geti þjálfað sig í jákvæðu sjálfstali og lært að hvetja sig áfram til jákvæðra verka og hugsunar.

Námskeiðið Lífslistin fyrir ungt fólk á aldrinum 14-18 ára

Með námskeiðinu er í senn leitast við að virkja og þjálfa listræna hæfileika og að finna nýja leiðir til að takast á við lífið. Þar býðst ungu fólki vettvangur til listrænnar sköpunar og þjálfunar í samskiptum og lífsleikni sem kost til mótvægis við áhættusama hegðun, s.s. vímuefnaneyslu, hegðunarvandamál og félagslega einangrun.

Lífslistin er skipulögð sem sjálfstyrkjandi nám sem felur í sér fjóra meginþætti:

• Listnám
• Vellíðan án vímuefna
• Hópmeðferð þar sem stuðst er við hugræna atferlismeðferð.
• Sjálfstyrking
• Fjölskylduvinna

Námskeiðið tekur rúmlega 3 mánuði, er haldið tvisvar til þrisvar í viku og fylgir skólaárinu. Einnig eru í boði einkaviðtöl og fjölskylduviðtöl, ásamt ævintýraferðum.

Upplýsingar í síma 6951378 / 6904035

Sjálfstyrking unglinga og „Börn eru líka fólk“

8.1.2009

Námskeið á vegum Vímulausrar æsku fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-12 og 13 -17 ára. Námskeiðin standa yfir í 10 vikur og foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum.

Námskeiðin „Sjálfstyrking unglinga“ fyrir 13 – 17 ára og „Börnin okkar“ fyrir 10 -12 ára eru byggð upp á líkan hátt. Verkefnavinna og umræðuefni eru sniðin og löguð að hverjum aldurshóp fyrir sig. Tekið er mið af þroska og hæfni þátttakenda. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sig í jákvæðara ljósi og beini hugsunum sínum að þeirra sterku hliðum og efli þær. Gott sjálfstraust og trú á eigin getu eru nauðsynlegir kostir til að varast óæskilegum áhrifum frá samfélaginu.

Námskeiðið stendur yfir í tíu vikur. Foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum.
Kennslan fer fram í Foreldrahúsinu. Allar nánari upplýsingar eru í símum 511-6161 eða 511-6160

MARKMIÐ
Byggja upp sjálfstraust
Byggja upp þekkingu á tilfinningum
Byggja upp félagsleg tengsl
Byggja upp samskipti samskiptahæfni
Byggja upp sjálfsþekkingu

Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði listrænnar sköpunar og mannlegra samskipta, þeir aðstoða unglingana til að beita ímyndunarafli sínu og sköpunargáfu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu.

Unglingarnir fara með verkefni heim þar sem þau æfa sig í samskiptum, ráða bót á neikvæðum tilfinningum og hvernig þau geti þjálfað sig í jákvæðu sjálfstali og lært að hvetja sig áfram til jákvæðra verka og hugsunar.

Nánari upplýsingar um námskeiðið á vef Vímulausrar æsku.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.