www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/gedraekt/vinir-zippy

 

„Vinir Zippýs“ námsefnið á Íslandi

Geðrækt fyrir börn

Vinir Zippý eða „Zippy´s Friends“ verk-efnið er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn sem Lýðheilsu-stöð hleypti af stokkunum árið 2005. Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim. Umsjón með verkefninu hefur verkefnisstjóri Geðræktar hjá Lýðheilsustöð, Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS, og veitir hún allar nánari upplýsingar.

Published in: on April 21, 2009 at 1:09 pm  Leave a Comment  

Einelti – helvíti á jörð

Myndin lýsir nöturlegri reynslu nokkurra einstaklinga af því að vera lagðir í einelti. Henni er ætlað að vekja áhorfandann til umhugsunar um alvarlegar afleiðingar eineltis og hve mikilvægt það er að koma fram við aðra eins og maður vill að komið sé fram við sig. Myndin hentar mjög vel sem stoðefni með lífsleikninámsefninu Í sátt og samlyndi og Að ná tökum á tilverunni þar sem fjallað er um samskipafærni.

Þessa mynd má bæði kaupa hjá Námsgagnastofnun eða hlaða niður með því að fara á heimasíðuna http://nams.is/allt-namsefni/vorunr/3236 

Published in: on April 21, 2009 at 12:58 pm  Leave a Comment  

Katla gamla – DVD

Námsgagnastofnun gefur út söguna um hana Kötlu gömlu.

Katla gamla fer óskaplega í taugarnar á krökkunum Ómari og Tinnu, því hún er alltaf að skamma þau. Þau ákveða að hefna sín á henni með því að gera at í henni. En þegar gamla konan verður fyrir óhappi sjá krakkarnir að sér og koma henni til hjálpar. Katla gamla er þeim þakklát og býður þeim heim til sín í kakó. Hún segir þeim frá því að hún hafi líka strítt öðrum þegar hún var krakki. Þegar hún var í barnaskóla lagði hún bekkjasystur sína í einelti. Seinna sá hún mikið eftir því og ætlaði að biðja hana fyrirgefningar, en þá var hún flutt úr hverfinu. Þegar krakkarnir frétta þetta fá þau snjalla hugmynd.

Þessa mynd má bæði kaupa hjá Námsgagnastofnun eða hlaða niður með því að fara á heimasíðuna http://nams.is/allt-namsefni/vorunr/3236 

Published in: on April 21, 2009 at 12:49 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.