Saksóknari krefst þess að gerendur verði dæmdir til að sinna samfélagsþjónustu

Saksóknari í Lundi í Svíþjóð hefur lagt fram kæru á hendur fimm stúlkum fyrir að hafa lagt 14 ára stúlku í einelti. Stúlkan reyndi að fyrirfara sér. Eineltið á að hafa átt sér stað í fyrra þegar meintir gerendur voru á síðasta ári í grunnskóla. Saksóknari segir að þolandinn hafi mátt sitja undir því á hverjum degi að vera kölluð fitubolla, ljót og ógeðsleg og undir hótunum að gengið yrði í skrokk á henni. Saksóknari krefst þess að gerendum verði gert að sæta samfélagsþjónustu, en ein stúlknanna hefur viðurkennt að hafa sent SMS- skeyti þar sem þolandi var niðurlægður. Hver er ábyrgð foreldra og skóla, spyr bloggari. (Byggt á frétt í Skånska dagbladet og DN í dag. )

Published in: on March 3, 2009 at 4:46 pm  Leave a Comment  

Svarti hundurinn

Killing the Black Dog. Athyglisverð sjálfsævisaga um skólagöngu og afleiðingar eineltis
Svarti hundurinn kallast það þegar þunglyndið bítur sig fast í fórnarlambið og neitar að sleppa. Afleiðingin er lyfjaneysla um ókomin ár. Ástralska ljóðskáldið Les Murray lýsir í sjálfsævisögu sinni hvernig hundurinn bítur sig fast í hann þegar hann kemur í heimsókn í gamla skólann sinn í Wales til að halda fyrirlestur. Murray kom auga á mann í áhorfendahópnum og minningar hrúguðust upp frá skólaárunum – hann gáfaður og feitur – og lagður í einelti. Réttara að segja að það hafi ekki verið minningar heldur líkamleg þjáning sem spratt fram: kláði, meltingartruflanir, tár. Og hann féll saman. Sá sem er barin sem barn leiðist sjálfur út í það að ná sér niður á eigin börnum, segir í dómi um bókina Svarti hundurinn drepinn.

Hægt er að lesa meira um Les Murray á Wikipedíu http://en.wikipedia.org/wiki/Les_Murray_%28poet%29

Published in: on March 3, 2009 at 4:31 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.