Unglingar – Upplýsingabrunnur

http://www.island.is/fjolskyldan/born-og-unglingar/unglingar/

Yfirlit

Með aldri og þroska öðlast hver og einn ýmis réttindi en jafnframt þarf einstaklingurinn að sama skapi að axla ábyrgð og uppfylla skyldur sínar. Unglingsárin einkennast af miklum breytingum, líkamlegum, andlegum og félagslegum.

Réttindi og skyldur

  • Réttindi segja til um hvers einstaklingurin getur krafist af samfélaginu, en skyldur segja til um hvaða kröfur samfélagið getur gert til einstaklingsins.
  • Meðal réttinda einstaklingsins er rétturinn til framfærslu, mál- og skoðanafrelsi og ríkisborgararéttur.
  • Unglingi á aldrinum 13 – 18 ára er skylt að hlýða fyrirmælum foreldra, virða skoðanir annarra og hlýta lögum samfélagsins.
  • Við 18 ára aldur fæst lögræði, það er fjárræði og sjálfræði, sem þýðir að unglingur ræður eigin eignum og búsetu en missir réttindi til framfærslu. Heimilt er að úrskurða foreldri til að greiða barni sínu framlag til menntunar eða starfsþjálfunar þar til það nær 20 ára aldri.

Réttindi og skyldur barna og unglinga á vef umboðsmanns barna
Réttindi 14 til 18 ára unglinga á vef umboðsmanns barna

Nám og vinna

Nám

  • Börnum og unglingum á aldrinum 6 – 16 ára er lögum samkvæmt skylt að sækja grunnskóla, en skólagangan er ókeypis.
  • Náminu lýkur með grunnskólaprófi og geta þeir sem standast grunnskólapróf sótt um vist í framhaldsskóla.
  • Innritun framhaldsskólanema á haustönn fer fram á vef Menntagáttar og er síðasti umsóknardagur í júní ár hvert. Innritun nema á vorönn fer ýmist fram í hverjum skóla fyrir sig eða á vef Menntagáttar.
  • Ýmsar upplýsingar um sérskóla, sérdeildir, starfsbrautir og annað námsframboð fyrir fötluð börn og unglinga má finna á vef Menntagáttar.

Framhaldsskólanám á island.is
Jöfnunarstyrkur ætlaður framhaldsskólanemum
Menntagáttin

Nám að loknum grunnskóla. Rit menntamálaráðuneytis (pdf, 4 mb)
Nám að loknum grunnskóla á ensku, litháísku, pólsku, rússnesku, serbnesku, spænsku, tælensku og víetnömsku
Hitt húsið, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks

Vinna

  • Börn í skyldunámi má aðeins ráða til vinnu í störf af léttara tagi.
  • Börn yngri en 13 ára mega aðeins taka þátt í menningar- og listviðburðum og íþrótta- og auglýsingastarfsemi og þá með leyfi Vinnueftirlitsins.
  • Börn á aldrinum 13 – 14 ára má ráða í störf af léttara tagi, nema þau sem teljast hættuleg eða líkamlega mjög erfið.
  • Vinnutími 15 – 17 ára má vera 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku á þeim tíma þegar skóli er ekki.
  • Næturvinna barna og unglinga er bönnuð.
  • Flest stærri sveitarfélög reka vinnuskóla eða unglingavinnu nokkrar vikur á sumrin fyrir elstu grunnskólanemana.
  • Nokkrar atvinnumiðlanir sérhæfa sig í að aðstoða ungt fólk við að finna vinnu.
  • Ungt fólk hvaðanæva af Norðurlöndunum á þess kost að sækja um sumarstörf í grannríkjunum.

Fjölsmiðjan, vinnusetur fyrir ungt fólk sem stendur á krossgötum
Nordjobb
Skapandi sumarstörf hjá Hinu húsinu
Skattar einstaklinga á island.is
Stúdentamiðlun
Sveitarfélög á landinu
Veggspjald Vinnueftirlitsins um vinnu barna og unglinga (pdf, 363 kb)
Vinnumiðlun ungs fólks

Kynþroski og kynlíf

  • Aldur við upphaf kynþroska virðist stjórnast af erfðum og umhverfisþáttum.
  • Upphaf kynþroska hefur farið lækkandi og eru aðal ástæður þess taldar vera betra næringarástand og betri heilbrigðisþjónusta.
  • Samkvæmt almennum hegningarlögum er það lögbrot að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn sem er yngra en 15 ára.

Ástráður, forvarnarstarf læknanema
Bæklingar Lýðheilsustöðvar: Samskipti foreldra og barna um kynlíf og Kynlíf, unglingar
Bæklingur Landlæknis: Kynsjúkdómar, smitleiðir, einkenni, afleiðingar og meðferð (pdf, 205 kb)
Kynfræðsla, á vef Landlæknis

Áfengi og vímuefni

  • Áfengis- og vímuefnaneysla getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
  • Oftast er neyslan í byrjun fikt sem sjaldan verður stórvandamál. En sá sem hefur fiktað er kominn yfir ákveðin mörk og hætta er á að fiktið verði að fíkn.
  • Fíkn er skildgreind með eftirfarandi hætti af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni:
    1. Sterk löngun eða áráttukennd þörf fyrir efnið.
    2. Stjórnlaus neysla. Tíðari, meiri eða varir lengur en gert var ráð fyrir.
    3. Líkamleg fráhvarfseinkenni þegar dregið er úr neyslu.
    4. Aukið þol – meira magn þarf til að ná sömu áhrifum og áður.
    5. Meiri tími fer í að nálgast efnið, neyta þess eða ná sér eftir neyslu.
    6. Neyslu er haldið áfram þrátt fyrir líkamlegan eða sálrænan skaða.
  • Fíkn er til staðar ef þrjú af sex ofangreindum einkennum hafa verið til staðar um eitthvert skeið á síðastliðnum tólf mánuðum.

Flott án fíknar
Fræðsla um áfengi og vímuefni á vef Lýðheilsustöðvar
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
Vímulaus æska

Lotugræðgi og lystarstol

  • Átröskunarsjúkdómar geta orðið mjög alvarlegir og lífshættulegir.
  • Sjúklingar þjást af sjúklegum ótta við að fitna, þrátt fyrir að vera í eðlilegri þyngd eða jafnvel horaðir.
  • Ástandinu fylgir andleg og líkamleg vanlíðan og sjúklingurinn þarf meðferð til að ná bata.
  • Ungar stúlkur eru í mestri áhættu á að veikjast en drengir og einstaklingar á öllum aldri geta fengið átraskanir.
  • Undanfari átraskana eru oft megrun, áföll af ýmsu tagi, erfiðleikar í félagahópnum, þunglyndi og önnur veikindi.
  • Brýnt er að grípa strax inn í og leita aðstoðar ef átröskun er að þróast.
  • Oft áttar einstaklingurinn sig ekki á því að eitthvað er að og þess vegna verður fjölskyldan að vera vakandi fyrir einkennum sjúkdómsins.

BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítala
Landspítali Hringbraut, átröskun
Spegillinn, hagsmuna, forvarnar- og fræðslusamtök um anorexiu og bulimiu
Upplýsingar um átraskanir á vef Tótalráðgjafar

Vert að skoða

Réttindi og skyldur

Nám og vinna

Kynþroski og kynlíf

Áfengi og vímuefni

Annað

Lög og reglugerðir

Vinanet, spjall fyrir alla

Vinanet, spjall fyrir alla – http://vinanet.is/

Spjallið opnar formlega 1. febrúar

Hvað er vinanet?

Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem af einhverjum ástæðum hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.

Hlutverk sjálfboðaliða er að halda utan um spjallið og sjá til þess að notendur spjalli saman á jákvæðum nótum ásamt því að ýta undir að allir taki virkan þátt – bæði í spjallinu og í mánaðarlegum hittingum utan netheima. Sjálfboðaliðar verkefnisins hafa setið grunnnámskeið Vinanets og fengið þjálfun í viðtalstækni.

Vinanet verður opið alla sunnudaga og þriðjudaga milli kl. 18:00-21:00 á slóðinni www.vinanet.is. Ungt fólk á aldrinum 16-25 er hvatt til þess að skoða síðuna, skrá sig og taka þátt í spjallinu.

Nýr notandi

Til að geta tekið þátt í spjallinu og skoðað vini á netinu þarft þú að vera innskráður notandi. Þú þarft að skrá nafnið þitt, kennitöluna þína og netfangið þitt. Kennitalan og netfang þitt kemur hvergi fram á síðunni og Rauði krossinn mun ekki gefa upplýsingar um notendur til þriðja aðila. Það er mjög mikilvægt að notendur gefi upp virkt netfang því upplýsingar um síðuna eru sendar á það. Hver notendaumsókn er skoðuð sérstaklega og hafir þú fengið höfnun er lag að breyta umsókn þinni í samræmi við athugasemdir vefstjóra og senda aftur.

Vinir á netinu

Þú getur breytt þínum upplýsingum hvenær sem er – það er stuttur texti um þig, áhugamál, aldur og fleira. Ráðlegt er að notendur gefi ekki upp persónulegar upplýsingar á netinu. Mælt er með að notendur nýti hittinga Vinanets til að skiptast á persónulegum upplýsingum svo sem símanúmerum og/eða tölvunetföng ef vilji er fyrir því.

Reglur

- Aðgát skal höfð í nærveru sálar
- Síðan er ætluð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára
- Síðan er ekki fyrir fólk í makaleit
- Brottvísunarsök ef fólk virðir ekki þessar reglur og hagar sér óviðeigandi eða ósiðlega

Skráning á spjall
innskráning á spjall
Vinir á netinu
Vinir á netinu
Tenglar

Hittingar

Einelti með nýjum miðlum

Umboðsmaður barna

Einelti með nýjum miðlum

Hvað er til ráða?

 

Einelti hefur margvíslegar birtingarmyndir:

 

* Munnlegt ofbeldi – Uppnefni, stríðni eða niðurlægjandi athugasemdir. Þeir sem beita ofbeldinu hvíslast t.d. á um fórnarlambið, flissa og hlæja.

* Félagslegt ofbeldi – Barnið er skilið útundan í leik, því er ekki boðið að taka þátt í samkomum með bekkjarfélögunum eins og t.d. afmælisveislum. Barnið þarf að þola svipbrigði, augnagotur, þögn eða algert afskiptaleysi.

* Efnislegt ofbeldi – Eigum fórnarlambsins er stolið, t.d. skólabókum, pennaveski, skólatösku, nesti eða íþróttafatnaði eða þessir hlutir eru eyðilagðir.

* Andlegt ofbeldi – Barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu, s.s. girt er niður um barnið, það látið eyðileggja eigur annarra, jafnvel skólans. Barnið fær endurtekið neikvæðar athugasemdir og hótanir, ýmist í daglegum samskiptum eða í gegnum netið eða GSM –síma.

* Líkamlegt ofbeldi – Gengið er í skrokk á barninu, það barið, klórað, hárreitt og sparkað er í það og því hrint.

 

Einelti með nýjum miðlum

Nokkuð hefur borið á því að börn og unglingar noti Netið (t.d. bloggsíður og MSN) og GSM –síma til að leggja fórnarlömb sín í einelti. Niðrandi ummæli, hótanir og móðganir með þessum miðlum ná enn nær fórnarlambinu því með þessu móti fær það ekki einu sinni frið á heimili sínu.

 

Þó að sumum börnum finnist ólíklegt að fullorðið fólk lesi nokkurn tíma skrif þeirra á Netinu er mikilvægt að ræða þessi mál þannig að öllum sé ljóst að það sem fer á Netið eru opinber gögn sem allir hafa aðgang að; foreldrar, ömmur, afar, kennarar o.fl. Einnig þarf að brýna fyrir börnum að efni og myndir sem sett er á Netið getur hver sem er skoðað og tekið afrit af og geymt eða sent áfram, jafnvel löngu seinna. Svo virðist sem börn og ungmenni átti sig ekki alltaf á þeim skaða og sárindum sem þau geta valdið með því að birta eitthvað ósæmilegt um annan einstakling eða hafa í hótunum við annað fólk á Netinu eða með SMS –skilaboðum. Því er mikilvægt að allir átti sig á því að við njótum tjáningarfrelsis en við erum jafnframt ábyrg orða okkar. Réttur okkar til að tjá okkur takmarkast af rétti annarra til að njóta friðhelgi einkalífs.

 

Niðrandi ummæli og hótanir á Netinu eða með SMS tengjast oft eineltismálum. Ef bæði gerandi og þolandi eru grunnskólanemendur er skólinn (skólarnir) góður vettvangur til að fá ráðleggingar varðandi næstu skref. Skólarnir geta tekið á málinu ef eineltið fer fram innan skólans eða ef niðrandi eða neikvæð ummæli um nemendur eru send úr tölvum skólans eða frá netfangi sem skólinn hefur úthlutað nemendum sínum. Þá er tekið á málinu og farið eftir eineltisáætlun viðkomandi skóla. Ef alvarlegt einelti og hótanir eiga sér stað á Netinu skal hafa samband við lögreglu. Félagsmiðstöðvarnar og félagsþjónustan geta líka komið að þessum málum.

 

Í XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er fjallað um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þar segir m.a.:

 

233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

233. gr. b. Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum.

234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.

235. gr. Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári.

236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.

Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

237. gr. Ef maður bregður manni brigslum án nokkurs tilefnis, þá varðar það sektum, þótt hann segi satt.

 

Lögreglan eða sýslumannsembættið á þeim stað þar sem barnið býr, eftir því sem við á, veitir upplýsingar um farveg málsins, telji forsjáraðili að brotið hafi verið gegn framangreindum ákvæðum. Forsenda þess að lögreglan taki á málinu er að forsjáraðilar fórnarlambsins kæri ummælin. Á www.logreglan.is er að finna helstu upplýsingar um embættin í landinu. Ef barn hefur haft í hótunum eða skrifað alvarleg niðrandi ummæli um annað barn á Netið eða sent þau með SMS–skilaboðum er oft talin ástæða til þess að kalla gerandann (sé vitað hver hann er) ásamt foreldrum í viðtal hjá lögreglu til að gera þeim grein fyrir alvarleika málsins. Barnaverndarnefnd fær alltaf upplýsingar ef barn er grunað um refsivert athæfi.

 

Landssamtökin Heimili og skóli starfrækja SAFT–verkefnið svokallaða en meginmarkmið þess er að hvetja til ábyrgrar og öruggrar netnotkunar barna og unglinga. SAFT stendur fyrir samfélag, fjölskylda og tækni. Verkefnið er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga og er hluti af aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Menntamálaráðuneytið hefur falið Heimili og skóla – landssamtökum foreldra að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins.

 

Hvað er til ráða?

Einelti kemur öllum við. Þegar upp koma eineltismál eru til ýmsar leiðir til að leita sér aðstoðar. Þolendur eineltis þarfnast ekki einungis hjálpar, heldur einnig gerendurnir. Eftirfarandi aðilar veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf um einelti.

 

Félagsþjónusta sveitarfélaganna

Á vegum sveitarfélaganna er veitt ýmis konar félagsleg ráðgjöf (fjölskylduráðgjöf). Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins. Með því að smella á viðkomandi sveitarfélag er hægt að komast inn á heimasíðu þess.

Þjónustumiðstöðvarnar í Reykjavík. Þar er veitt ýmiss konar félagsleg ráðgjöf. Nánar á www.reykjavik.is.

Olweusarverkefnið gegn einelti

Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla og með stuðningi Kennaraháskóla Íslands. Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins á Íslandi er Þorlákur H. Helgason. Hægt er að hafa samband við Þorlák í síma 894–2098 eða á netfangið thorlakur@khi.is. Þorlákur veitir ráðgjöf þeim sem til hans leita vegna eineltismála í grunnskólum.

Heimili og skóli

Landssamtökin Heimili og skóli aðstoða þá sem hafa áhyggjur af einhverju varðandi skólagöngu og uppeldi barna. Heimasíðan er www.heimiliogskoli.is.

*

Hjálparsími Rauða krossins 1717

Þessi sími er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu. Það kostar ekkert að hringja.

Kirkjan

Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál, enda eru prestar bundnir trúnaði.

Skólaskrifstofa sveitarfélagsins

Á skólaskrifstofu sveitarfélagsins (Menntasviði í Reykjavík) starfa sérfræðingar sem veita skólunum og nemendum þeirra faglegan stuðning.

Starfsfólk skólans

Ef um er að ræða einelti í skólanum er nauðsynlegt að umsjónarkennari viti af því til að hægt sé að bregðast við því. Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.

Starfsfólk félagsmiðstöðvar

Ef eineltið á sér stað í félagsmiðstöð er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið á að hafa þekkingu og reynslu til að taka á málinu og leiðbeina.

Starfsfólk félags eða stofnunar

Ef eineltið á sér stað í íþrótta- eða tómstundastarfi er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið eða a.m.k. forstöðufólk ætti að geta tekið á eineltinu og leiðbeint um viðeigandi aðgerðir.

Tótalráðgjöfin

Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.

Börn og þunglyndi

http://www.landlaeknir.is/?PageID=289

Þunglyndi getur lagst á alla, líka börn og ungmenni

Börn með námserfiðleika
Börn sem lenda í einelti
Börn sem einangrast félagslega
Börn sem flytja oft
Börn eftir skilnaði
Börn eftir dauðsfall
Börn sem eru vanrækt
Börn sem eiga foreldra með geðræna sjúkdóma
eða eiga við fíknivanda að stríða.

Áður fyrr var talið að börn gætu ekki orðið þunglynd, þunglyndi væri sjúkdómur þeirra fullorðnu. Depurð og aðrar tilfinningasveiflur unglingsáranna voru útskýrðar sem  eðlilegur fylgifiskur þess að breytast og þroskast. Undanfarin ár hefur geðheilsa barna verið markvisst skoðuð. Þá kemur í ljós að þunglyndi hinna ungu er vaxandi vandi í hinum vestræna heimi.

Það sem veldur þunglyndi barna eða ungmenna er samspil margra þátta. Lágt sjálfsmat, erfitt áfall,  s.s. við dauðsfall náins ættingja eða vinar, erfiður skilnaður foreldra, og félagsleg einangrun um lengri tíma getur orðið  ávísun á þunglyndi, sérstaklega ef barnið fær ekki virkan stuðning innan fjölskyldunar. Þunglyndi foreldris er áhættuþáttur fyrir börn, sömuleiðis mikil spenna og samskiptaörðuleikar á heimili.

Einkenni
Helstu einkenni þunglyndis hjá börnum og unglingum eru einbeitingarleysi með minnkuðum námsárangri, pirringur og reiði, léleg umhirða, lystarleysi og þreyta; þau kvarta um að geta ekki sofið eða að dreyma illa, þau snúa sólarhringnum við og loka sig af frá vinum; leiði, og áhugaleysi; dapurleg tónlist verður ríkjandi.

Mjög mikilvægt er að vera vakandi fyrir þunglyndi barna því ómeðhöndlað þunglyndi getur haft afdrifarík áhrif á líf þeirra síðar á ævinni. Ómeðhöndlað þunglyndi barns getur truflað mjög alla félagslega virkni og leitt til þess að barnið flosnar upp úr skóla, leitt til félagslegrar einangrunar og  vímuefnanotkunar til að deyfa sársaukann. Í verstu tilvikum getur það leitt til sjálfsvígstilraunar.

Meðferð
Mikilvægt er að hefja meðferð sem fyrst. Það er ekki nóg að meðhöndla barnið eitt og sér, heldur þarf að aðstoða alla fjölskylduna. Foreldrar þurfa  stuðning og fræðslu til að geta stutt barnið sem best. Fjölskyldumeðferð hefur að leiðarljósi að minnka togstreitu, ef hún er fyrir hendi, og stuðla að bættum samskiptum allra aðila.

Auk þess þarf barnið eða ungmennið einstaklingsmiðaða meðferð. Hópmeðferð getur líka verið mjög gagnleg, ekki síst þar sem hún hjálpar barninu/unglingnum að sjá að það eru fleiri sem glíma við svipaðan vanda, því að barnið hefur oft þróað með sér það viðhorf að engum geti liðið eins illa og því sjálfu, eða verið jafn ómöguleg manneskja.

Lyfjameðferð er stundum valkostur og er þannig meðferð nú beitt í æ ríkara mæli við þunglyndi barna og unglinga.

Úrræði
Þunglyndi greinist oft fyrst í skólanum. Kennarar taka eftir því að nemandinn er farinn að dragast aftur úr, sinnir ekki heimanámi, tekur lítinn þátt í umræðu, dregur sig í hlé eða mætir illa.  Leita þarf allra ráða til að koma í veg fyrir að slíkt ástand þróist í þunglyndi svo að draga megi úr hamlandi áhrifum þess á þroska barnsins.

Innan skólans eru sálfræðingar, námsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingar og kennarar sem hægt er að leita til í upphafi og fá ráðgjöf hjá. Heilsugæslan á hverjum stað getur gripið inn í ferlið snemma. Margar heilsugæslustöðvar hafa komið á fót unglingamóttöku þar sem unglingurinn getur komið sjálfur án þess að panta tíma. Sérfræðingsþjónusta er  á Barna-og unglingageðdeild við Dalbraut. Eins er starfandi barnageðlæknir við barnadeild FSA á Akureyri.

Þá starfa barnageðlæknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og geðhjúkrunarfræðingar á einkareknum stofum sem veita ráðgjöf og meðferð. Félagsþjónustan um allt land hjálpar til með stuðningi við fjölskyldur í vanda, m.a. með því að útvega tilsjónarmenn, stuðningsfjölskyldur, greiða kostnað við meðferð ef með þarf, auk þess sem Barnaverndarstofa hefur fjölmörg meðferðarúrræði sem félagsþjónustan getur beðið um ef barn eða ungmenni þarf tímabundið að komast í annað umhverfi til að ná bata.

- – - – - – - – -

Vefir um skyld efni:

Sérstakur upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna á vegum Þjóðar gegn þunglyndi:
www.umhuga.is

Á vef Rauða kross Íslands er að finna fræðsluefni fyrir unglinga í vanda:
Sálræn skyndihjálp fyrir unglinga

Fræðsluvefur á ensku með leiðbeiningum fyrir þá sem starfa við uppeldi og kennslu barna og unglinga með það markmið að bæta tilfinningalega líðan þeirra og færni:
Partnership for Children. Zippy’s friends

Bandarískur vefur um samstarf skóla með það að leiðarljósi að hjálpa nemendum með margvíslega námsörðugleika:
All kinds of minds

Hvert skal leita.

Leitaðu ráða hjá:

  • Heilsugæslustöðvum
  • Bráðamóttöku geðdeilda
  • Sérfræðingum um geðheilsu, t.d. geðlækni, sálfræðingi, eða geðhjúkrunarfræðingi
  • Námsráðgjafa, presti eða félagsráðgjafa
  • Fjölskyldumiðstöðinni; þar er hægt að fá viðtöl fyrir foreldra með börn í vanda.
  • Ekki má hér gleyma því sem oft er mikilvægast, það er að ræða um vanlíðan sína við nána ættingja og vini.

Hér fyrir neðan eru heimilisföng og símanúmer ýmissa sem geta veitt þér hjálp og ráðgjöf:
Heilsugæslustöðvar í hverju heilsugæsluumdæmi
Sjá símaskrá

Læknavaktin
Smáratorgi 1, 200 Kópavogur
Sími: 1770

Félagsþjónusta í einstökum sveitarfélögum
Sjá símaskrá
Bakvakt Barnaverndar sveitafélaga:
Hringið í síma 112

Hjálparsími Rauða kross Íslands
Sími: 1717. Smellið á mynd.

Bráðaþjónusta geðdeilda:
Landspítali - háskólasjúkrahús
við Hringbraut, 101 Reykjavík
Sími: 543 1000

Fjórðungssjúkrahús Akureyrar
Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri
Sími: 463 0100

Geðhjálp
Túngötu 7, 101 Reykjavík
Sími: 570 1700

Vinalínan
Sími: 561 6464, grænt númer: 800 6464

Fjölskyldumiðstöðin
Heilsuverndarstöðinni
Barónsstíg 47, 101
Sími: 511 1599

Landlæknisembættið: Þjóð gegn þunglyndi
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnes
Sími: 510 1900, fax: 510 1919
Tölvupóstur: postur@landlaeknir.is
Vefsíður: www.landlaeknir.is
www. thunglyndi.landlaeknir.is

Sjá einnig: www.umhuga.is

SJÁLFSTYRKING námskeið fyrir börn og unglinga


SKRÁNINGAR Á NÁMSKEIÐ 2009:
Skráning sendist á jorunn@vimulaus.is
upplýsingar: nafn foreldris, sími og kennitala, nafn barns og bekkur


UM NÁMSKEIÐIÐ:

Sjálfstyrking unglinga fyrir 13 – 17 ára og Börnin okkar fyrir 10 -12 ára eru byggð upp á líkan hátt. Verkefnavinna og umræðuefni eru sniðin og löguð að hverjum aldurshópi fyrir sig. Tekið er mið af þroska og hæfni þátttakenda. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sig í jákvæðara ljósi og beini hugsunum sínum að sínum sterku hliðum og efli þær. Gott sjálfstraust og trú á eigin getu eru nauðsynlegir kostir til að verjast óæskilegum áhrifum frá samfélaginu.

Námskeiðið stendur yfir í tíu vikur
Foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum

Kennslan fer fram í Foreldrahúsinu. Allar nánari upplýsingar eru í símum 511-6161 eða 511-6160

MARKMIÐ
Byggja upp sjálfstraust
Byggja upp þekkingu á tilfinningum
Byggja upp félagsleg tengsl
Byggja upp samskiptahæfni
Byggja upp sjálfsþekkingu

VINNULÝSING
Sjálfstyrking
: Námskeiðinu er ætlað að efla sjálfstraust og félagslega færni barna/unglinga. Gerð eru tilfinningaverkefni og þátttakendum er kennt að skilgreina eigin tilfinningar. Þekking á eigin tilfinningum og líðan getur hjálpað til við að öðlast betra líf.

Víðsýni og skilningur á samfélaginu. Að vera fær um að setja sig í spor annarra án þess að dæma er mikilvægt. Að átta sig á hvað liggur að baki hegðunar annarra hverju sinni auðveldar viðkomandi að átta sig betur á skilaboðum frá umhverfinu.

Verkefnavinna er í skriflegu formi, unglingarnir fá heimaverkefni í samskiptum, þeir æfa sig heima eða í skólanum og segja síðan frá árangrinum á næsta fundi. Er þá sérstaklega átt við samskipti við annað fólk.

Listnám: Myndlist, tónlist, leikræn tjáning, sjálfstæð listsköpun og orðlist. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og framkvæmdargleði.

Án vímu: Að lifa sáttur og án vímugjafa er mikilvægur þáttur. Farið verður með þátttakendur t.d. á kaffihús. Þeim er kennt að setja eðlileg mörk. t.d. gagnvart vinum sínum. Einnig er þeim kennt að skilgreina hvað er óeðlilegt áreiti frá samfélaginu. Farið er yfir hvernig þeim gekk aðstanda með sér og hvernig þeim leið þegar vel tóks til.

Ræðukeppni: Hópnum er skipt upp í hópa, með eða móti, málefni og það rökrætt. Á eftir er svo farið yfir hvernig þeim leið að standa uppi í pontu, óttinn við að standa upp skilgreindur og hvað gekk vel. Rætt er um sjálfsöryggi og hvað það er, sem gefur okkur öryggi þegar við stöndum í pontunni.

Samskipti: Við hvern eru erfiðustu samskiptin? Unglingunum er hjálpað til að sjá báðar hliðar. Leir er notaður sem táknmynd um það þegar manni líður verst.

Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði listrænnar sköpunar og mannlegra samskipta, þeir aðstoða unglingana til að beita ímyndunarafli sínu og sköpunargáfu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu.

Unglingarnir fara með verkefni heim þar sem þau æfa sig í samskiptum, ráða bót á neikvæðum tilfinningum og hvernig þau geti þjálfað sig í jákvæðu sjálfstali og lært að hvetja sig áfram til jákvæðra verka og hugsunar.

Námskeiðið Lífslistin fyrir ungt fólk á aldrinum 14-18 ára

Með námskeiðinu er í senn leitast við að virkja og þjálfa listræna hæfileika og að finna nýja leiðir til að takast á við lífið. Þar býðst ungu fólki vettvangur til listrænnar sköpunar og þjálfunar í samskiptum og lífsleikni sem kost til mótvægis við áhættusama hegðun, s.s. vímuefnaneyslu, hegðunarvandamál og félagslega einangrun.

Lífslistin er skipulögð sem sjálfstyrkjandi nám sem felur í sér fjóra meginþætti:

• Listnám
• Vellíðan án vímuefna
• Hópmeðferð þar sem stuðst er við hugræna atferlismeðferð.
• Sjálfstyrking
• Fjölskylduvinna

Námskeiðið tekur rúmlega 3 mánuði, er haldið tvisvar til þrisvar í viku og fylgir skólaárinu. Einnig eru í boði einkaviðtöl og fjölskylduviðtöl, ásamt ævintýraferðum.

Upplýsingar í síma 6951378 / 6904035

Sjálfstyrking unglinga og „Börn eru líka fólk“

8.1.2009

Námskeið á vegum Vímulausrar æsku fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-12 og 13 -17 ára. Námskeiðin standa yfir í 10 vikur og foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum.

Námskeiðin „Sjálfstyrking unglinga“ fyrir 13 – 17 ára og „Börnin okkar“ fyrir 10 -12 ára eru byggð upp á líkan hátt. Verkefnavinna og umræðuefni eru sniðin og löguð að hverjum aldurshóp fyrir sig. Tekið er mið af þroska og hæfni þátttakenda. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sig í jákvæðara ljósi og beini hugsunum sínum að þeirra sterku hliðum og efli þær. Gott sjálfstraust og trú á eigin getu eru nauðsynlegir kostir til að varast óæskilegum áhrifum frá samfélaginu.

Námskeiðið stendur yfir í tíu vikur. Foreldrar mæta í tvö skipti með börnum sínum.
Kennslan fer fram í Foreldrahúsinu. Allar nánari upplýsingar eru í símum 511-6161 eða 511-6160

MARKMIÐ
Byggja upp sjálfstraust
Byggja upp þekkingu á tilfinningum
Byggja upp félagsleg tengsl
Byggja upp samskipti samskiptahæfni
Byggja upp sjálfsþekkingu

Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði listrænnar sköpunar og mannlegra samskipta, þeir aðstoða unglingana til að beita ímyndunarafli sínu og sköpunargáfu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu.

Unglingarnir fara með verkefni heim þar sem þau æfa sig í samskiptum, ráða bót á neikvæðum tilfinningum og hvernig þau geti þjálfað sig í jákvæðu sjálfstali og lært að hvetja sig áfram til jákvæðra verka og hugsunar.

Nánari upplýsingar um námskeiðið á vef Vímulausrar æsku.

Það eru til lausnir ef fólki líður illa (stress, depression)

Álag, streita og kvíði.

Þegar fólk verður fyrir áföllum þarf það að muna að nauðsynlegt er að ræða málin við sína nánustu og fá hjá þeim þann stuðning sem hægt er. Flestum nægir slíkur stuðningur en fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki rætt við sína nánustu eru önnur úrræði í boði. Ef fólk finnur fyrir kvíða, depurð eða einkennum þunglyndis eða þekkir einhvern sem það hefur áhyggjur af eru margvíslegar leiðir til að leita aðstoðar.

Það eru til lausnir og hjálpin er nær en þig kann að gruna, þar á meðal eru:

Heilsugæslan; heimilislæknar og hjúkrunarfræðingar.

1717 hjálparsími Rauða Krossins.

Ráðgjöf á vegum geðdeildar Landspítala í Heilsuverndarstöð verður opnuð á næstu 1–2 sólarhringum.

Ráðgjafarstöð heimilanna.

Göngudeildir geðdeilda Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

Göngudeildin Von við SÁÁ (í erfiðum aðstæðum aukast líkur á falli).

Ráðgjafarstöð á vegum félagsmálaráðuneytis (verið að setja upp).

Aðstoð við fólk í vanda á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga

Fjölskyldumiðstöð á Háleitisbraut.

Fjölskylduþjónusta kirkjunnar.

Vaktþjónusta heilsugæslunnar.

Sérfræðistofur geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.

Langvarandi álag, streita og kvíði geta valdið þunglyndi ef ekkert er að gert, þ.e. ef fólk hlúir ekki að sér og sínum nánustu eða leitar þeirrar aðstoðar sem í boði er. Munum að þegar rætt er um þunglyndi þá verið að ræða sjúklegt ástand sem hefur staðið samfellt í a.m.k. 14 daga og getur þróast í alvarlegan sjúkdóm. Við þurfum þó fyrir alla muni að gæta þess að líta ekki á áhyggjur af aðsteðjandi efnahagsvanda eins og um sjúkdóm sé að ræða.


Látið áfengi í friði
Það er einnig ástæða til á að hvetja fólk sem hefur þungar áhyggjur til að láta áfengi eða önnur vímuefni í friði vegna þess að neysla þeirra losar um hömlur og getur gert ástandið mun verra. Áfengisneysla getur til að mynda aukið á samskiptaerfiðleika, komið af stað pirringi, valdið reiði og vakið bæði vonleysi og neikvæðar hugsanir um tilgangsleysi.


Að lokum skal bent á meiri fræðslu um þessi efni á vefjunum

http://www.thunglyndi.landlaeknir.is/ og

http://www.umhuga.is/, en þar er listi yfir enn fleiri staði sem hægt er að leita til

(http://www.umhuga.is/I-vanda-Hvert-leita-eg). Sjá ennfremur:

Hugum að velferð barna.


1717 Hjálparsími Rauða krossins

Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna kvíða, þunglyndis, depurðar, efnahagsáhyggja eða jafnvel sjálfsvígshugsana. Starfsmenn og sjálfboðaliðar 1717 eru þjálfaðir í að veita upplýsingar um samfélagslega þjónustu og úrræði fyrir þá sem vita ekki hvert á að snúa sér til þess að takast á við sín vandamál. 1717 er einnig hluti af almannavörnum og veitir upplýsingar til  almennings þegar neyðarástand ríkir í landinu eða vegna fjöldaslysa. Allir sem starfa við 1717 eiga það sameiginlegt að vilja sýna náungakærleika og vera til staðar fyrir þá sem þurfa á einhverjum að halda til að ræða við.

Hjálparsími Rauða krossins er landsverkefni allra deilda Rauða krossins og í samstarfi við Landlæknisembættið, Neyðarlínuna og geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss.


Hjá Hjálparsímanum starfa um 100 sjálfboðaliðar auk starfsmanna. Allir hafa hlotið þjálfun í virkri hlustun, sálrænum stuðningi, skyndihjálp, viðtalstækni, og fleira. Að auki stendur Hjálparsíminn tvisvar á ári fyrir svokölluðum átaksvikum til að bregðast við aðstæðum í þjóðfélaginu eða til að vekja athygli á ákveðnum málaflokkum og málefnum.  Sjálfboðaliðarnir fá þá sérstaka fræðslu um málaflokkinn og hafa á reiðum höndum upplýsingar um úrræði í þeim efnum. 15-22.  febrúar 2009 verður átaksvika um forvarnir gegn einelti hjá 1717. Aðilar frá Jerico hafa í því tilefni veitt fræðslu til handa sjálfboðaliðum og starfsmönnum Hjálparsíma Rauða krossins svo þeir séu betur í stakk búnir til að taka á móti erfiðum símtölum er tengjast einelti.

Sjálfboðaliðar og starfsmenn 1717 tóku á móti 21.627 símtölum yfir árið 2008 sem eru tæplega fimm þúsund fleiri símtöl en bárust á árinu 2007. Símtölin eru af ýmsum toga en eru grófflokkuð í eftirfarandi flokka: Sálræn vandamál, félagsleg vandamál, heilbrigðis vandamál, kynferðismál, neysla áfengis, ofbeldi og annað.

Rúmlega tíu þúsund símtöl á árinu voru flokkuð sem sálræn vandamál en undirflokkar þar eru: Átröskun, eigið sjálfsvíg, einelti/stríðni, einmana/leiði, geðröskun, kvíði/fælni, sjálfsmynd, sorg/söknuður og þunglyndi.

Fólk sem hringir vegna sálrænna vandamál leitar helst eftir stuðningi og huggun – sjálfboðaliðar veita þeim virka hlustun og benda á möguleg úrræði til þess að draga úr vanlíðan þeirra. Alvarlegustu símtölin eru sjálfsvígssímtöl en sjálfboðaliðar 1717 hafa allir fengið viðamikla þjálfun í að bregðast rétt við þeim símtölum. Hjálparsíminn er sem fyrr segir í samstarfi við Neyðarlínuna og geðdeild Landsspítalans og getur leitað bjarga til þeirra ef einstaklingur á línunni er í lífshættu.


Símtöl af félagslegum toga sóttu á í október og nóvember 2008 þegar kreppan skall á. Um er að ræða símtöl sem snúast um atvinnuleysi, fjármál, forræðisdeilur, húsnæðismál, námsörðugleika, samskiptaörðugleika/missætti, skilnað, vanrækslu, ástarmál og afbrot. Fólk sem hringir vegna félagslegra vandamála þarf oft bæði virka hlustun og upplýsingar um samfélagsleg úrræði og þjónustu – hvert það getur leitað lausna við sínum vandamálum.

Hjálparsími Rauða krossins er fyrir alla þá sem þurfa að ræða málin – einkunnarorð 1717 eru hlutleysi, skilningur, nafnleysi og trúnaður. Síminn er opinn allan sólahringinn allan ársins hring, gjaldfrjáls og það birtist ekki á símareikningnum að hringt hafi verið í 1717.

Published in: on December 14, 2008 at 12:01 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.