Vinanet, spjall fyrir alla

Vinanet, spjall fyrir alla – http://vinanet.is/

Spjallið opnar formlega 1. febrúar

Hvað er vinanet?

Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem af einhverjum ástæðum hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.

Hlutverk sjálfboðaliða er að halda utan um spjallið og sjá til þess að notendur spjalli saman á jákvæðum nótum ásamt því að ýta undir að allir taki virkan þátt – bæði í spjallinu og í mánaðarlegum hittingum utan netheima. Sjálfboðaliðar verkefnisins hafa setið grunnnámskeið Vinanets og fengið þjálfun í viðtalstækni.

Vinanet verður opið alla sunnudaga og þriðjudaga milli kl. 18:00-21:00 á slóðinni www.vinanet.is. Ungt fólk á aldrinum 16-25 er hvatt til þess að skoða síðuna, skrá sig og taka þátt í spjallinu.

Nýr notandi

Til að geta tekið þátt í spjallinu og skoðað vini á netinu þarft þú að vera innskráður notandi. Þú þarft að skrá nafnið þitt, kennitöluna þína og netfangið þitt. Kennitalan og netfang þitt kemur hvergi fram á síðunni og Rauði krossinn mun ekki gefa upplýsingar um notendur til þriðja aðila. Það er mjög mikilvægt að notendur gefi upp virkt netfang því upplýsingar um síðuna eru sendar á það. Hver notendaumsókn er skoðuð sérstaklega og hafir þú fengið höfnun er lag að breyta umsókn þinni í samræmi við athugasemdir vefstjóra og senda aftur.

Vinir á netinu

Þú getur breytt þínum upplýsingum hvenær sem er – það er stuttur texti um þig, áhugamál, aldur og fleira. Ráðlegt er að notendur gefi ekki upp persónulegar upplýsingar á netinu. Mælt er með að notendur nýti hittinga Vinanets til að skiptast á persónulegum upplýsingum svo sem símanúmerum og/eða tölvunetföng ef vilji er fyrir því.

Reglur

- Aðgát skal höfð í nærveru sálar
- Síðan er ætluð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára
- Síðan er ekki fyrir fólk í makaleit
- Brottvísunarsök ef fólk virðir ekki þessar reglur og hagar sér óviðeigandi eða ósiðlega

Skráning á spjall
innskráning á spjall
Vinir á netinu
Vinir á netinu
Tenglar

Hittingar

Það eru til lausnir ef fólki líður illa (stress, depression)

Álag, streita og kvíði.

Þegar fólk verður fyrir áföllum þarf það að muna að nauðsynlegt er að ræða málin við sína nánustu og fá hjá þeim þann stuðning sem hægt er. Flestum nægir slíkur stuðningur en fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki rætt við sína nánustu eru önnur úrræði í boði. Ef fólk finnur fyrir kvíða, depurð eða einkennum þunglyndis eða þekkir einhvern sem það hefur áhyggjur af eru margvíslegar leiðir til að leita aðstoðar.

Það eru til lausnir og hjálpin er nær en þig kann að gruna, þar á meðal eru:

Heilsugæslan; heimilislæknar og hjúkrunarfræðingar.

1717 hjálparsími Rauða Krossins.

Ráðgjöf á vegum geðdeildar Landspítala í Heilsuverndarstöð verður opnuð á næstu 1–2 sólarhringum.

Ráðgjafarstöð heimilanna.

Göngudeildir geðdeilda Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

Göngudeildin Von við SÁÁ (í erfiðum aðstæðum aukast líkur á falli).

Ráðgjafarstöð á vegum félagsmálaráðuneytis (verið að setja upp).

Aðstoð við fólk í vanda á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga

Fjölskyldumiðstöð á Háleitisbraut.

Fjölskylduþjónusta kirkjunnar.

Vaktþjónusta heilsugæslunnar.

Sérfræðistofur geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.

Langvarandi álag, streita og kvíði geta valdið þunglyndi ef ekkert er að gert, þ.e. ef fólk hlúir ekki að sér og sínum nánustu eða leitar þeirrar aðstoðar sem í boði er. Munum að þegar rætt er um þunglyndi þá verið að ræða sjúklegt ástand sem hefur staðið samfellt í a.m.k. 14 daga og getur þróast í alvarlegan sjúkdóm. Við þurfum þó fyrir alla muni að gæta þess að líta ekki á áhyggjur af aðsteðjandi efnahagsvanda eins og um sjúkdóm sé að ræða.


Látið áfengi í friði
Það er einnig ástæða til á að hvetja fólk sem hefur þungar áhyggjur til að láta áfengi eða önnur vímuefni í friði vegna þess að neysla þeirra losar um hömlur og getur gert ástandið mun verra. Áfengisneysla getur til að mynda aukið á samskiptaerfiðleika, komið af stað pirringi, valdið reiði og vakið bæði vonleysi og neikvæðar hugsanir um tilgangsleysi.


Að lokum skal bent á meiri fræðslu um þessi efni á vefjunum

http://www.thunglyndi.landlaeknir.is/ og

http://www.umhuga.is/, en þar er listi yfir enn fleiri staði sem hægt er að leita til

(http://www.umhuga.is/I-vanda-Hvert-leita-eg). Sjá ennfremur:

Hugum að velferð barna.


1717 Hjálparsími Rauða krossins

Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna kvíða, þunglyndis, depurðar, efnahagsáhyggja eða jafnvel sjálfsvígshugsana. Starfsmenn og sjálfboðaliðar 1717 eru þjálfaðir í að veita upplýsingar um samfélagslega þjónustu og úrræði fyrir þá sem vita ekki hvert á að snúa sér til þess að takast á við sín vandamál. 1717 er einnig hluti af almannavörnum og veitir upplýsingar til  almennings þegar neyðarástand ríkir í landinu eða vegna fjöldaslysa. Allir sem starfa við 1717 eiga það sameiginlegt að vilja sýna náungakærleika og vera til staðar fyrir þá sem þurfa á einhverjum að halda til að ræða við.

Hjálparsími Rauða krossins er landsverkefni allra deilda Rauða krossins og í samstarfi við Landlæknisembættið, Neyðarlínuna og geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss.


Hjá Hjálparsímanum starfa um 100 sjálfboðaliðar auk starfsmanna. Allir hafa hlotið þjálfun í virkri hlustun, sálrænum stuðningi, skyndihjálp, viðtalstækni, og fleira. Að auki stendur Hjálparsíminn tvisvar á ári fyrir svokölluðum átaksvikum til að bregðast við aðstæðum í þjóðfélaginu eða til að vekja athygli á ákveðnum málaflokkum og málefnum.  Sjálfboðaliðarnir fá þá sérstaka fræðslu um málaflokkinn og hafa á reiðum höndum upplýsingar um úrræði í þeim efnum. 15-22.  febrúar 2009 verður átaksvika um forvarnir gegn einelti hjá 1717. Aðilar frá Jerico hafa í því tilefni veitt fræðslu til handa sjálfboðaliðum og starfsmönnum Hjálparsíma Rauða krossins svo þeir séu betur í stakk búnir til að taka á móti erfiðum símtölum er tengjast einelti.

Sjálfboðaliðar og starfsmenn 1717 tóku á móti 21.627 símtölum yfir árið 2008 sem eru tæplega fimm þúsund fleiri símtöl en bárust á árinu 2007. Símtölin eru af ýmsum toga en eru grófflokkuð í eftirfarandi flokka: Sálræn vandamál, félagsleg vandamál, heilbrigðis vandamál, kynferðismál, neysla áfengis, ofbeldi og annað.

Rúmlega tíu þúsund símtöl á árinu voru flokkuð sem sálræn vandamál en undirflokkar þar eru: Átröskun, eigið sjálfsvíg, einelti/stríðni, einmana/leiði, geðröskun, kvíði/fælni, sjálfsmynd, sorg/söknuður og þunglyndi.

Fólk sem hringir vegna sálrænna vandamál leitar helst eftir stuðningi og huggun – sjálfboðaliðar veita þeim virka hlustun og benda á möguleg úrræði til þess að draga úr vanlíðan þeirra. Alvarlegustu símtölin eru sjálfsvígssímtöl en sjálfboðaliðar 1717 hafa allir fengið viðamikla þjálfun í að bregðast rétt við þeim símtölum. Hjálparsíminn er sem fyrr segir í samstarfi við Neyðarlínuna og geðdeild Landsspítalans og getur leitað bjarga til þeirra ef einstaklingur á línunni er í lífshættu.


Símtöl af félagslegum toga sóttu á í október og nóvember 2008 þegar kreppan skall á. Um er að ræða símtöl sem snúast um atvinnuleysi, fjármál, forræðisdeilur, húsnæðismál, námsörðugleika, samskiptaörðugleika/missætti, skilnað, vanrækslu, ástarmál og afbrot. Fólk sem hringir vegna félagslegra vandamála þarf oft bæði virka hlustun og upplýsingar um samfélagsleg úrræði og þjónustu – hvert það getur leitað lausna við sínum vandamálum.

Hjálparsími Rauða krossins er fyrir alla þá sem þurfa að ræða málin – einkunnarorð 1717 eru hlutleysi, skilningur, nafnleysi og trúnaður. Síminn er opinn allan sólahringinn allan ársins hring, gjaldfrjáls og það birtist ekki á símareikningnum að hringt hafi verið í 1717.

Published in: on December 14, 2008 at 12:01 pm  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.